













Maríugata 33, 210 Garðabær 125.000.000 kr.
219,2 m², raðhús, 8 herbergi
Maríugata 33. Um er að ræða samtals 219,2 fm mjög vel staðsett neðangötu enda-raðhús á tveim hæðum með frábæru óskertu útsýni að Heiðmörk ( ekkert byggt fyrir neðan hús ) Inngangur og aðkoma að húsi er af efri hæð. Einnig er sér inngangur í neðri hæð, möguleiki á aukaíbúð. Maríugata 31 er einnig til sölu, verð 139 millj. Hús nr 35 og 37 eru seld með fyrirvara.
Húsið skilast fullbúið að utan múrhúðað og málað, grófjöfnuð lóð. Að innan skilast húsið einangrað og rakasperra í loft, útveggir múrhúðaðir. Gluggar eru ál/tré. Inntök fyrir raf og hita komin. Húsin verða byggð í samræmi við nútímaþarfir og kröfur.
Afhending til að hefja framkvæmdir að innan okt. 2022 eða fyrr.
HÚSIÐ: Við hönnun hússins er lögð áhersla á að íbúar húsins njóti útsýnis og sólar, meðal annars með stórum gluggum, veröndum og svölum, þá er lögð áhersla á að sjónrænt myndi húsið heildasvip og að samræming sé í efnis og litavali. Húsið er skráð samtals 219,2 fermetrar, íbúð 193,3 fm og bílskúr 25,9 fm.
Innra skipulag efri hæðar: Anddyri, gestasnyrting, eldhús, borðstofa og stofa, útgengt úr stofu á svalir, fjölskyldu/sjónvarpsherbergi. Bílskúr.
Innra skipulag neðri hæðar: Anddyri. Fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla. Teikningar https://map.is/gardabaer/@358688,399410,z5,0
Arkitekt hússins er Helgi Hjálmarsson - Teiknistofan Óðinstorgi. Verkhönnun er Verkfræðistofan Víðsjá.
Frágangur:
Burðarvirki: Sökklar, plötur, útveggir og berandi veggir hússins eru steinsteyptir og jarnbentir. Lagnir: Rör í rör lagnakerfi. Gert er ráð fyrir gólfhitalögn:
Gluggar/hurðir og gler: Gluggar eru Ál/tré að innan og litað ál að utan, glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Bílskúrshurðin er ál, einangruð.
Þak: Þakvirkið er ýmis úr timbursperrum eða steypt. Lóð: Grófjöfnuð lóð.
HVERFIÐ: Húsin standa við Maríugötu í Urriðahverfi í Garðabæ. Skammt frá er Urriðaskóli sem er grunn- og leiksskóli hverfissins. Í næsta nágrenni er golfvöllur, Urriðarvöllur, útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarvatn og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s. verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvikjum. Urriðaholt er umlukið fjölbreyttum opnum náttúrusvæðum og er fyrsta hverfið á Íslandi til að hljóta vistvottun skv. vottunarkerfi BREEAM Communities. Hverfið byggir á hugsjón um að íbúðarbyggð eigi að hámarka lífsgæði fólks sem þar býr í sátt við náttúruna og umhverfið allt. Hverfið nýtur allra þjónustu sem Garðabær hefur uppá að bjóða. Nánar má lesa um hverfið á vefnum http://urridaholt.is/
Verkáætlun/Afhending: Afhending til að hefja framkvæmdir að innan okt. 2022 eða fyrr. Stefnt er að framkvæmdum ljúki utanhúss á árinu 2022 (háð veðurfari o.fl ) en gæti lokið eigi síðar en maí, 2023.
Upplýsingar um eignina veitir: Sigurður Tyrfingsson löggiltur fasteignasali og Húsasmíðameistari s. 898-3708 eða sigurdur@gardatorg.is
Garðatorg eignamiðlun er staðsett á Garðatorgi 7 í Garðabæ.
Skilalýsing:
Húsið skilast fullbúið að utan og grófjöfnuð lóð. Að innan skilast húsið einangrað og rakasperra í loft, útveggir múrhúðaðir. Inntök komin. Að utan verður húsið múrhúðað/málað og einangrað að innan.
Gluggar eru ál/tré. Stærð húsa er samkvæmt skráningatöflu hönnuða. Það athugist að 3D myndir eru til að gefa vísbendingar af útliti og skipulagi hússins, sama á við um lóðauppdrátt. Burðarvirki: Sökklar, plötur, útveggir og berandi veggir hússins eru steinsteyptir og jarnbentir. Útveggir: Veggir eru einangraðir að innan og múrhúðaðir. Gluggar/hurðir og gler: Gluggar eru Ál/tré að innan og litað ál að utan, glerjaðir með þreföldu gleri, stofugluggar/stórir eru glerjaðir með þykku tvöföldu gleri. Bílskúrshurðin er ál, einangruð. Þak: Þakvirkið er steinsteypt og jarnbent og að hluta til úr timbursperrum, heilklætt, þakpappi eða PVC dúkur. Þakið er einangrað með rakasperru í timburhlutanum, steypti hlutin er einangraður og fullfrágengin að utan. Milliveggir: Léttir milliveggir fylgja ekki. Loft: Timburloft eru einangruð með rakasperru. Steypt loft einangruð að utanverðu. Hitakerfi: Stofninntök komin. Gólfhitalagnir eru lagðar í steypta plötu í bílskúr. Raflagnakerfi: Stofninntök komin. Rör og dósir lagðar í steypta veggi og loft. Loftræsting: Loftræstirör eru innsteypt samkvæmt teikningu. Vélræst loftræsting með inn og útsogi. Svalir: Fljótandi glerhandrið. Lóð: skilast grófjöfnuð, skjólveggir, plön, stígar fylgja ekki. Sorptunnuskýli er ekki innifalið (er tekið með lóðafrágangi). Lóð + - 30 cm frá endanlegum jarðvegi. Byggingin skal að öðru leyti uppfylla öll ákvæði byggingareglugerðar. Sérstaklega er bent á mannvirkjalög í þessu sambandi. Húsið skal að öðru leyti byggt og því skilað í samræmi við lög og reglur varðandi nýbyggingar. Allir aðkeyptir byggingarhlutar sem notaðir verða í byggingunni munu vera af viðurkenndri gerð.

- Brunabótamat0 kr.
- Fasteignamat10.950.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð20. maí. 2022
- Flettingar2015
- Skoðendur1836
- 219,2 m²
- Byggt 2022
- 8 herbergi
- 6 svefnherbergi
- Bílskúr











