Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson

Björn Davíðsson





















Höfðabyggð E23 Lundskógi , 607 Akureyri 99.000.000 kr.
195 m², sumarhús, 6 herbergi
Glæsilegt heilsárshús í Lundskógi í Fnjóskadal – samtals 195 m² að stærð en nýtanlegir fermetrar eru fleiri. Húsið stendur við götuna Hlíðarbyggð.
Aðalhæð: Forstofa, gangur, stofa og eldhús í einu rými, tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi.
Ris: Opið ris/svefnloft – rúmgott, c.a. 60 m² að grunnfleti.
Kjallari: Eitt herbergi, hol/þvottahús og bílskúr eða leiktækjageymsla.
Nánari lýsing:
Forstofan er með flísum á gólfi og þar er stór eikar fataskápur.
Eldhúsið og stofan eru í einu rúmgóðu og björtu alrými þar sem loftin eru tekin upp og stórir gluggar eru bæði á suður og vesturhlið. Góð eikarinnrétting með vönduðum siemens eldhústækjum með burstaðri stál áferð. Rennihurða opnun út á pall er bæði út úr eldhúsi til vesturs og úr stofu til suðurs. Í stofu er kamina.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö á aðalhæðinni og eitt í kjallara. Annað herbergið á efri hæð (hjónaherbergið) er með stóru baðherbergi innaf með bæði baðkari og sturtu, og úr herberginu er útgangur á pall til vesturs. Flísar eru á öllum herbergjunum.
Baðherbergin eru tvö og er bæði rúmgóð, flísalögð í hólf og gólf, eikar innréttingar og í öðru þeirra er bæði baðkar og sturta, en bara stór sturta í hinu og útgangur á pall og í heitan pott.
Risloftið er parketlagt og er mjög rúmgott og þar væri hægt að útbúa tvö herbergi.
Leiktækjageymsla/bílskúr er með flísum á gólfi og þar er bæði gönguhurð og innkeyrsluhurð. Hellulögð verönd er þar fyrir utan og steyptar tröppur upp á lóðina með suðurhliðinni.
Þvottahús / hol er í kjallaranum, flísalagt og þar er góð þvottahúsinnrétting.
Pallurinn í kringum allt húsið er steyptur. Skjólveggir eru bæði steyptir og úr gleri og góð útilýsing. Heitur pottur er sunnan við húsið og hitalagnir eru í pallinum við pottinn og við aðalinngang.
Annað
- Hitaveita er í húsinu og varmaskiptir.
- Hiti er í öllum gólfum nema í risi en þar eru ofnar.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Eignin er öll nýmáluð að innan (maí 2022)
- Bílaplan er rúmgott
- Húsið stendur efst í byggðinni - gott útsýni
- Allar innréttingar eru úr spónlagri eik
- Húsið er timburhús á steyptum kjallara, klætt með bárujárni og sedrusviði
- Lóðin er stór, rúmur hektari að stærð - 11.480 m²
- Mjög góður 9 holu golfvöllur og gólfskáli með veitingum er í göngufæri frá húsinu.

- Brunabótamat98.000.000 kr.
- Fasteignamat58.350.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð22. maí. 2022
- Flettingar1681
- Skoðendur1537
- 195 m²
- Byggt 2008
- 6 herbergi
- 2 baðherbergi
- 4 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Þvottahús



















