





















Hagamelur 20, 107 Reykjavík 27.900.000 kr.
29,9 m², hæð, 2 herbergi
Eignin er laus til afhendingar.
Snyrtileg 2.herbergja íbúð á 3. hæð í fjögurra íbúða húsi. Stofa og eldhús í opnu rými. Íbúðin er skráð 29.9 fm hjá Þjóðskrá Íslands. Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í göngufæri við Melaskóla, Háskóla Íslands og Vesturbæjarlaug.
Eldhús með parketi á gólfi. Helluborð, ofn og háfur. Kirsuberja eldhúsinnrétting.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og þakgluggum. Tveir geymsluskápar eru undir risi.
Svefnherbergi með parketi og þakglugga.
Baðherbergi með flísum á gólfi og kringum baðkar. Innrétting við vask. Tengi fyrir þvottavél.
Sameiginlegur inngangur er í eignina.
Einnig fylgir hlutdeild á móti öllum hinum eignum hússins í sameiginlegu rými í kjallara hússins, þvottahúsi, hitakompu og þurrkherbergi. Það rými er í sameiginlegri eigu Hagamels 18 og 20.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Veist þú um einhvern sem þarf aðstoð við að selja eignina sína, gerðu tvennt. Segðu okkur frá þeim og þeim frá okkur !
Erum með mikið af fólki á skrá sem leitar eftir skiptum á bæði stærri og minni eign.
M2 Fasteignasala & Leigumiðlun sími 421-8787
M2 fasteignasala á Facebook
M2 fasteignasala á Instagram
www.fermetri.is

- Brunabótamat13.550.000 kr.
- Fasteignamat26.750.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð27. maí. 2022
- Flettingar5313
- Skoðendur4696
- 29,9 m²
- Byggt 1947
- 2 herbergi
- 1 baðherbergi
- 1 svefnherbergi
- Engar svalir
- Laus strax
- Garður
- Þvottahús




















