





















Stórholt 13, 400 Ísafjörður 42.900.000 kr.
127,1 m², fjölbýlishús, 4 herbergi
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Stórholt 13 Ísafirði íb. 0201 - Mikið endurnýjuð og falleg fjögurra herbergja íbúð á 2.hæð í fjölbýli ásamt bílskúr. Frábært útsýni út fjörðinn - Húsið sjálft var nýlega einangrað og klætt að utanverðu. Sameiginlegur inngangur og stigagangur. Í íbúðinni er forstofa og hol, þrjú góð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgóð stofa með svölum. Sérgeymsla og sameiginlegt þvottahús á jarðhæð. Bílskúr er skráður 19,7 m² og íbúðin auk geymslu 107,4 m² að stærð.
Nánari lýsing:
Komið er inn í íbúð, þar er forstofa með fatahengi og flísum á gólfi.
Rúmgott hol með harðparketi á gólfi, nýtist vel undir tölvu og vinnuaðstöðu.
Nýlegt eldhús með hvítri innréttingu, helluborð, ofn og tengi fyrir uppþvottavél.
Rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi, svalir út frá stofu.
Baðherbergi með flísum á gólfi og hita í gólfi, baðkar með sturtu, hvít innrétting.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með stórum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi með litlum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Þriðja herbergið með harðparketi á gólfi.
Bílskúr 19,7 m² er með steyptu gólfi, bílskúrshurð úr timbri með inngönguhurð.
Á jarðhæð er sérgeymsla um 4,5 m² og sameiginlegt þvottahús.
Sameiginlegur garður fyrir aftan húsið sunnan megin. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr á malbikuðu plani.
Framkvæmdir að sögn seljenda:
Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð 2019.
Húsið einangrað og klætt að utanverðu 2019.
Skipt um mest allt gler og gluggalista 2019.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

- Brunabótamat46.520.000 kr.
- Fasteignamat22.550.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð23. jún. 2022
- Flettingar471
- Skoðendur400
- 127,1 m²
- Byggt 1978
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Bílskúr
- Suðursvalir
- Útsýni
- Garður
- Þvottahús



















