HÚS fasteignasala
Austurvegi 26, 800 Selfoss - Útibú: Strandvegi 43a, Vestmannaeyjum, Ármúli 7, Reykjavík
4971155 - www.husfasteign.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Snorri Sigurfinnsson

Guðrún Hulda Ólafsdóttir

Loftur Erlingsson

Halldóra Kristín Ágústsdóttir

Vilborg Hansen

A-Gata 4, 805 Selfoss 34.400.000 kr.
57,6 m², sumarhús, 3 herbergi
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu sumarhúsið Sælukot eða A-Göta 4, Grímsnes- og Grafningshreppi, 805 Selfoss.
Hlýlegt 57,6fm, þriggja herbergja sumarhús, byggt árið 1984 á 6521fm, skógi vaxinni EIGNARLÓÐ, tveir geymsluskúrar og rafmagnspottur fylgja.
Gengið er inn af palli sem nær umhverfis húsið. Í forstofunni er góður skápur og svo gangur inn, alrými á vinstri hönd, stærra svefnherbergið beint inn og baðherbergið til hægri. Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi auk þess sem hitt svefnherbergið er þar innaf. Í eldhúsi er nett innrétting með nýlegri eldavél og uppþvottavél sem fylgir við sölu eins og ísskápurinn. Laus eyja framan við. Stofan björt og hægt að opna út á pall með stórri glerhurð. Kamína og varmadæla til upphitunar þar en rafmagnsofnar í herbergjum og á baðherbergi. Annað svefnherbergið panelklætt og með koju, hitt fyrir enda gangsins eins og fyrr segir, búið að mála panelinn þar eins og á baðherberginu, stofunni og eldhúsinu. Baðherbergið með sturtuklefa, hitakút, hillum og handlaug á nettum skáp.
Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki. Pallur umhverfis húsið og rafmagnspottur við vestur enda þess. Þá eru tveir geymsluskúrar á lóðinni, annar við húsið, ca 5fm og óeinangraður en hinn um 10fm áður vinnuskúr sem stendur á tveimur stálbitum, hvorki tengdur við vatn né rafmagn en hugsanlega nýtilegur sem gestahús með tiltölulega litlum tilkostnaði.
Á svæðinu er starfandi félag húseigenda og er árgjald þar 30þús, en félagið sér m.a. um snjómokstur eftir þörfum á veturna auk reksturs öryggishliðs sem er á veginum inn á svæðið.
Kyrrlátur og fallegur staður.
Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali
s. 896 9565,
loftur@husfasteign.is
Hringið og bókið skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Sýna alla lýsingu

- Brunabótamat27.950.000 kr.
- Fasteignamat20.850.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 2. ágú. 2022
- Flettingar1095
- Skoðendur957
- 57,6 m²
- Byggt 1984
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi