
















































Freyjubrunnur 25-27, 113 Reykjavík 87.900.000 kr.
118,5 m², fjölbýlishús, 3 herbergi
HÚSASKJÓL KYNNIR:
*** Opið hús verður í Freyjubrunni 25-27, þriðjudaginn 16.ágúst kl. 17:30-18:00. Ásdís Ósk Valsdóttir, löggiltur fasteignasali tekur á móti gestum og veitir nánari upplýsingar í síma: 863-0402 eða email: asdis@husaskjol.is.***
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA TÍMA Í OPIÐ HÚS OG SÆKJA UPPLÝSINGABÆKLING FYRIR FREYJUBRUNN 25-27
Einstök 3ja herbergja íbúð við Freyjubrunn 25-27 í 113 Reykjavík á efstu hæð með miklu útsýni.. Eignin er skráð 118,5 fm og þar af er geymslan 12,9 fm. Einnig fylgir eigninni stæði í bílageymslu.Íbúðin sem og húsið er mjög vandað og hannaði Rut Kára innréttingar, gólfhiti í allri íbúðinni. Húsið var málað að utan í fyrra. Frábær staðsetning rétt við Hólmsheiðina og Reynisvatn.
FASTEIGNAMAT 2023 VERÐUR 67.700.000
Linkur á video af Freyjubrunni 25-27
Smelltu hér til að skoða teikningar af Freyjubrunni 25-27
Komið er inn í mjög glæsilega sameign og tekin lyfta upp á 3ju og efstu hæð. Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Hol með flísum á gólfi og fataskáp. Glæsilegt baðherbergi með flísum á gólfi og upp 2 veggi, sturta, baðkar, upphengt salerni og mikið skápapláss. 2 svefnherbergi, bæði með skápum og parketi. Þvottahús er innan íbúðar, flísar á gólfi, vaskur og skápar. Eldhús og stofa er opið rými. Mjög rúmgóð innrétting með miklu skápaplássi. Innrétting er L-laga ásamt stórri eyju. Stofan er parketlögð og útgengt á rúmgóðar suðursvalir. Glæsilegt útsýni er frá íbúðinni yfir Hólmsheiði og Vífilsfellið.
Í sameign er sérstæði í bílahúsi og innaf stæðinu er mjög rúmgóð geymsla sem er frábær fyrir útivistarfólk þar sem það er hægt að kippa öllu beint í bílinn, hvort sem það er hjól, skíði eða golfsett. 22v innstunga í skúr þar sem hægt er að hlaða rafmagnsbíl. Eingöngu 2 bílar nota hverja innkeyrsluhurð. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Fyrir framan húsið er Freyjutorg sem Reykjavíkurborg á og því þurfa íbúar ekki að sinna neinu garðviðhaldi.
Allar upplýsingar veitir Ásdís Ósk löggiltur fasteignasali í síma: 863-0402 eða email: asdis@husaskjol.is
Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar
Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls
Ertu í fasteignahugleiðingum erlendis? Húsaskjól er meðlimur í Leading Real Estate Companies of the World
Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer, sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald. Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

- Brunabótamat53.690.000 kr.
- Fasteignamat58.050.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 6. ágú. 2022
- Flettingar892
- Skoðendur750
- 118,5 m²
- Byggt 2008
- 3 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Út af stofu
- Garður
- Þvottahús

Ásdís Ósk Valsdóttir Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Húsaskjól fasteignasala
Ármúli 4-6, 108 Reykjavík
asdis@husaskjol.is
519-2600










































