Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Reynir Erlingsson

Gyða Gerðarsdóttir
.jpg)





















Núpsvegur 1-5, 471 Þingeyri Tilboð
2680,7 m², atvinnuhúsnæði, 25 herbergi
Nýtt Heimili fasteignasala og leigumiðlun kynnir:
Eignarhaldsfélag um fasteignir við Héraðsskólann að Núpi við Dýrafjörð til sölu. Miklir möguleikar í ferðaþjónustu og tengdri starfssemi í einni af náttúruperlum Vestfjarða og er hluti af "Vestfjarðarleiðinni". Vestfjarðarleiðin hefur að geyma margar af þekktustu náttúruperlum Íslands og faldir fjársjóðir víða. Þar er hægt að komast í tæri við margar birtingamyndir fallegrar náttúru, nokkra af fegurstu fossum landssins, fuglabjörg, útsýnisstaði, náttúrulaugur og heillandi firði og dali.Sjá drónavideó af byggingunum HÉR:
Sjá kynningarmyndband um staðinn og Hótelið HÉR:
Nánari lýsing:
Húseignin Núpsvegur 1 til 5 eru tvær álmur með tengibyggingu. Í annari (norður) álmunni eru 3 íbúðir og 28 tveggja manna gistiherbergi með vaski. Á göngum eru salerni og sturtur. Í lítið niðurgröfnum kjallara er eldhús, sturtur og salerni, verkstæði og geymslur. Sum herbergi í kjallara hafa verið notuð til gistingar.
Í tengibyggingu er lobbý, 2 skrifstofur og geymsla ásamt opnu rými að stigagangi. Á neðri hæð er stórt verkstæði með bílskúrshurð, hitamiðstöð og geymslur.
Í hinni álmunni (syðri) eru 2 íbúðir, stór matsalur og eldhús með bar sem opnast inn í matsalinn. Ennfremur þrjú kennslu-/fundaherbergi, þvotta og línherbergi, geymslur, vinnuaðstaða, frystir og kælir, salerni og stigagangur.
Húsið hefur samtals 10 inngangshurðir með góðu aðgengi að mismunandi pörtum hússins sem gefur möguleika á fjölbreyttri nýtingu.
Ástand hússins, byggt 1964, er þokkalega gott, þar var síðast rekið gistiheimili árið 2020 en sú starfsemi var aflögð vegna Covid-19 faraldursins. Leyfi til veitinga- og gistiheimilisreksturs eru enn til staðar en eignin gæti líka nýst til annarar starfsemi. Komið er að viðhaldi á sumum pörtum hússins, þakrennum og sumum glugganna sem og lögnum og hitakerfi. Eins er athugandi hvor breyta ætti herbergjum með tilliti til nútímakrafna, sameina mætti herbergi til að hafa sér baðherbergi með hverju þeirra og gera úr hverjum þremur herbergjum tvö með baði. Íbúðirnar þarfnast líka endurbóta, kominn er tími á að mála og endurnýja tæki á baðherbergjum og í eldhúsum.
Fjórar íbúðir eru um og yfir 100 fm og ein íbúðin er stúdíóíbúð sem skráð er tæplega 30 fm en gæti hæglega verið stækkuð með því að breyta geymslum. Eins væri hægðarleikur að útbúa eina stóra íbúð til viðbótar á jarðhæð í suðurálmu, undir tvemum íbúðanna, sem og að skipta sumum af stóru íbúðunum í tvær minni. Mikill íbúðaskortur er á Vesfjörðum, bæði til langtímadvalar sem og ferðamannadvalar.
Heimtaug fyrir rafmagn er ný og unnið hefur verið að því að leggja niður gamlar tengingar, rafmagns og hita, sem áður þjónuðu öðrum húsum á svæðinu. Möguleiki er á að setja upp varmadælur til að hita húsið. Rafmagn er þriggja fasa og ljósleiðari er til staðar.
Aðkoma að staðnum er góð, 7 km eru að þjóðvegi 60, Vestfjarðavegi, og er vegurinn malbikaður. Um hálftíma akstur er á Ísafjörð og svipuð vegalengd að náttúruperlunni Dynjandi. Dýrafjörðurinn sjálfur er líka einstakur og þar er mikil náttúrufegurð, sögulegar minjar og tækifæri til útivistar. Garðurinn Skrúður er í næsta nágrenni og aðgengi að sjó er skammt undan.
Sjá myndband frá Núpi og nágrenni HÉR:
Sjá myndband um brimbrettastaðinn í Dýrafirði á nágrenni við Núp HÉR:
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu í síma 414-6600 eða netfang nyttheimili@nyttheimili.is
Nýtt Heimili - Fasteignasala og leigumiðlun - Sími 414-6600 - Hamraborg 12 - 200 Kópavogur.
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér og pantaðu frítt sölumat.
Líka á facebook - Smelltu hér / NyttHeimili.

- Brunabótamat959.520.000 kr.
- Fasteignamat146.300.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð20. ágú. 2022
- Flettingar1139
- Skoðendur984
- 2680,7 m²
- Byggt 1964
- 25 herbergi
- 28 svefnherbergi
- Margir inngangar

Reynir Erlingsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Nýtt Heimili Fasteignasala og Leigumiðlun
Hamraborg 12, 200 Kópavogur
reynir@nyttheimili.is
820-2145




















