Procura Home Bjargargata 1, 102 Reykjavík 4977700 - https://procura.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:

Sogavegur 77, 108 Reykjavík 87.900.000 kr.

120,6 m², fjölbýlishús, 3 herbergi

Sogavegur 77, 108 Reykjavík er glæsileg 3 herbergja íbúð í nýlegu fjölbýlishúsi frá 2020. Alls er um að ræða 120,6 fermetra eign sem skiptist í 103,7 fm íbúðarrými og 16,9 fm geymslu. Eignin skiptist í forstofu, opið eldhús, stóra stofu/borðstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og stóra sérgeymslu í kjallara. Mikil lofthæð er í íbúðinni. Eigninni fylgja fallegar 5,8 fm suðursvalir ásamt sérmerktu bílastæði í lokaðri bílageymslu þar sem auðvelt er að koma fyrir rafmagnshleðslu.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 120,6 fm, þar af er íbúðarrými 103,7 fm og geymsla 16,9 fm

Nánari lýsing
Forstofa: Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús: Opið eldhús með ljósri innréttingu og vönduðum tækjum.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suður svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Með upphengdu salerni, handklæðaofni og stórri sturtu. Vandaðar flísar á gólfi og hluta veggja.
Þvottahús: Rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og gott vinnupláss.
Svalir: Skjólsælar svalir sem snúa til suðurs.
Geymsla: Stór og rúmgóð 16,9 fm geymsla í kjallara.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign.

Eignin er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í skóla, verslanir, almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu.
- - -
Allar nánari upplýsingar veita Ásgeir Þór löggiltur fasteignasali á netfangið asgeir@procura.is og Oddný María aðstoðarmaður fasteignasala á netfangið oddny@procura.is eða í síma 497-7700
- - -
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
Kynntu þér fasteignaþjónustu Procura og nýja þjónustu okkar við leit að fasteign fyrir þig.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat69.020.000 kr.
  • Fasteignamat77.750.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð29. ágú. 2022
  • Flettingar2606
  • Skoðendur2235
  • 120,6 m²
  • Byggt 2020
  • 3 herbergi
  • 1 baðherbergi
  • 2 svefnherbergi
  • Sameiginl. inngangur
  • Suðursvalir
  • Lyfta
  • Garður
  • Þvottahús

Lánareiknir: 87.900.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 70.320.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 17.580.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Sogavegur, 108 Reykjavík

Verð:87.900.000 kr. Stærð: 120.6 m² Tegund:Fjölbýli Herbergi: 3
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Procura Home

Sími: 4977700
procura@procura.is
https://procura.is


Eignin var skráð 29 ágúst 2022
Síðast breytt 6 janúar 2023

Senda á vin eignina Sogavegur, 108 Reykjavík

Verð:0 kr. Stærð: 120.6 m² Tegund:Fjölbýli Herbergi: 3
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Procura Home

Sími: 4977700
procura@procura.is
https://procura.is


Eignin var skráð 29 ágúst 2022
Síðast breytt 6 janúar 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store