Gimli fasteignasala Grensásvegur 13 - 2 hæð - 108 Reykjavík 5704800 - www.gimli.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg

Jakasel 9, 109 Reykjavík 115.900.000 kr.

218,3 m², einbýlishús, 7 herbergi

"Eignin er seld með fyrirvara"
Gimli
fasteignasala kynnir: Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er 218,3 fm að meðtöldum 34,5 fm bílskúr. Í húsinu í dag eru fjögur svefnherbergi, öll á efri hæð, en einfalt er að bæta við svefnherbergjum á neðri hæð. Á efri hæð er einnig baðherbergi, geymslur í risi og suður svalir. Allar innihurðir á efri hæð eru nýjar. Á neðri hæð eru stofur, eldhús, borðstofa, þvottahús og gestasalerni. Nýlegt vandað harðparket er á nær öllum gólfum, uppi og niðri. Bílskúrinn stendur sér og er með heitu og köldu vatni, góðum gluggum, nýrri bílskúrshurð, auka hurð og býður því uppá ýmsa möguleika. Húsið er múrsteinsklætt timburhús. Gróinn garður umlykur húsið og er hluti hans afgirtur. Hiti er í bílaplani, gangstétt og tröppum niður að húsinu. Á bílskúrsvegg er nýleg bílarafhleðslustöð. Nýlega var gerð ástandsskýrsla um húsið.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason, Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, eða með tölvupósti til kristjan@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð; Er 109,8 fm.
Forstofa; Gengið inn í húsið að framanverðu og komið inn í mjög rúmgóða forstofur með fatahengi.
Stofur; Búið er að taka niður veggi á svefnherbergi til þess að stækka stofuna. Auðvelt að breyta til baka.
Eldhús; Stór hvít eldhúsinnrétting, svartir efri skápar á einum vegg, spansuðu helluborð. 
Borðstofa; Opið er á milli eldhúss og borðstofu og úr henni er hægt að ganga út á sólpallinn, vestan við húsið.
Þvottahús; Mjög rúmgott, málað gólf og hurð út í garðinn fyrir austan húsið, þar sem eru þvottasnúrur.
Gestasalerni; Innrétting með vask, skápur, opnanlegur gluggi, dökkar flísar á gólfi.
Stigi; Járnstigi með viðartröppum, liggur á milli hæða.

Efri hæð; Rishæð, er skráð 74 fm en er jafnstór neðri hæð að grunnfleti.  
Hjónaherbergi; Stórir fataskápar með speglahurðum, gengt úr herberginu út á svalir, sem eru undir þakskegginu og meðfram suður gafli hússins.
Svefn-/barnaherbergi; Eru þrjú í dag en eitt þeirra var áður sjónvarpshol, þar sem komið er upp stigann.
Baðherbergi; Sturtuklefi og baðkar, hvoru tveggja með nýjum blöndunartækjum, dúkur á gólfi og opnanlegir gluggar.

Bílskúr; Stendur sér og er 34,5 fm að stærð. Ný bílskúrshurð, nýleg bílarafhleðslustöð er utan á skúrnum, hellulagt og upphitað bílaplan er fyrir framan skúrinn. Á bakhlið eru tveir stórir gluggar og á hliðinni, sem snýr að húsinu, er gönguhurð. Heitt og kalt vatn. Gæti hentað vel til þess að breyta í íbúð.
Garður; Húsið stendur á 685 fm lóð og er garðurinn gróinn og umlykur húsið. Skjólveggir og pallar eru við vestur hlið húss og fyrir framan. Hluti garðsins er alveg afgirtur. Hiti er í gangstétt og tröppum niður að húsinu.
Skv, teikningum þá er húsið og bílskúrinn hvoru tveggja timburhús, klætt að utan með múrsteini.
Mjög stutt er í matvöruverslun, leikskóla og útivistarsvæði á Vatnsenda. Þá er húsið við hliðina skíðabrekku, þar sem Reykjavíkurborg ætlar að gera Vetrargarð.
Nánari upplýsingar veitir Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, eða með tölvupósti til kristjan@gimli.is

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat86.100.000 kr.
  • Fasteignamat103.700.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð21. feb. 2023
  • Flettingar7334
  • Skoðendur5889
  • 218,3 m²
  • Byggt 1984
  • 7 herbergi
  • 2 baðherbergi
  • 4 svefnherbergi
  • Sérinngangur
  • Bílskúr
  • Þvottahús

Lánareiknir: 115.900.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 92.720.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 23.180.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Jakasel, 109 Reykjavík

Verð:115.900.000 kr. Stærð: 183.8 m² Tegund:Einbýli Herbergi: 7
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Gimli fasteignasala

Sími: 5704800
gimli@gimli.is
www.gimli.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg

Eignin var skráð 21 febrúar 2023
Síðast breytt 8 mars 2023

Senda á vin eignina Jakasel, 109 Reykjavík

Verð:0 kr. Stærð: 183.8 m² Tegund:Einbýli Herbergi: 7
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Gimli fasteignasala

Sími: 5704800
gimli@gimli.is
http://www.gimli.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Halla Unnur Helgadóttir
Elín Urður Hrafnberg

Eignin var skráð 21 febrúar 2023
Síðast breytt 8 mars 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store