










Núpsvegur 1-5, 471 Þingeyri Tilboð
2685 m², atvinnuhúsnæði, 25 herbergi
Nánari lýsing: Í annari (norður) álmunni eru 3 íbúðir og 34 veggja manna gistiherbergi með vaski. Á göngum eru salerni og sturtur. Í lítið niðurgröfnum kjallara er eldhús, sturtur og salerni, verkstæði og geymslur. Sum herbergi í kjallara hafa verið notuð til gistingar.
Í tengibyggingu er lobbý, 2 skrifstofur og geymsla ásamt opnu rými að stigagangi. Á neðri hæð er stórt verkstæði með bílskúrshurð, hitamiðstöð og geymslur.
Í hinni álmunni (syðri) eru 2 íbúðir, stór matsalur og eldhús með bar sem opnast inn í matsalinn. Ennfremur þrjú kennslu-/fundaherbergi, þvotta og línherbergi, geymslur, vinnuaðstaða, frystir og kælir, salerni og stigagangur.
Ástand hússins, byggt 1964, er þokkalega gott, þar var síðast rekið gistiheimili árið 2020 en sú starfsemi var aflögð vegna Covid-19 faraldursins. Leyfi til veitinga- og gistiheimilisreksturs eru enn til staðar en eignin gæti líka nýst til annarar starfsemi. Komið er að viðhaldi á sumum pörtum hússins, þakrennum og sumum glugganna sem og lögnum og hitakerfi. Eins er athugandi hvor breyta ætti herbergjum með tilliti til nútímakrafna, sameina mætti herbergi til að hafa sér baðherbergi með hverju þeirra og gera úr hverjum þremur herbergjum tvö með baði. Íbúðirnar þarfnast líka endurbóta, kominn er tími á að mála og endurnýja tæki á baðherbergjum og í eldhúsum.
Fjórar íbúðir eru um og yfir 100 fm og ein íbúðin er stúdíóíbúð sem skráð er tæplega 30 fm en gæti hæglega verið stækkuð með því að breyta geymslum. Eins væri hægðarleikur að útbúa eina stóra íbúð til viðbótar á jarðhæð í suðurálmu, undir tvemum íbúðanna, sem og að skipta sumum af stóru íbúðunum í tvær minni. Mikill íbúðaskortur er á Vesfjörðum, bæði til langtímadvalar sem og ferðamannadvalar.
Heimtaug fyrir rafmagn er ný og unnið hefur verið að því að leggja niður gamlar tengingar, rafmagns og hita, sem áður þjónuðu öðrum húsum á svæðinu. Möguleiki er á að setja upp varmadælur til að hita húsið. Rafmagn er þriggja fasa og ljósleiðari er til staðar.
Aðkoma að staðnum er góð, 7 km eru að þjóðvegi 60, Vestfjarðavegi, og er vegurinn malbikaður. Um hálftíma akstur er á Ísafjörð og svipuð vegalengd að náttúruperlunni Dynjandi. Dýrafjörðurinn sjálfur er líka einstakur og þar er mikil náttúrufegurð, sögulegar minjar og tækifæri til útivistar. Garðurinn Skrúður er í næsta nágrenni og aðgengi að sjó er skammt undan.
Hér er drónavideó af byggingunum https://icedrive.net/s/13iFSWWvkwZ7taZ9S1kA2BN3FtFb
Nánari upplýsingar:
Jason Kristinn Ólafsson, löggiltur fasteignasali. Sími 7751515 - jko@miklaborg.is

- Brunabótamat887.500.000 kr.
- Fasteignamat146.300.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð12. nóv. 2022
- Flettingar452
- Skoðendur400
- 2685 m²
- Byggt 1964
- 25 herbergi
- 24 baðherbergi
- 25 svefnherbergi
- Margir inngangar
- Bílastæði

Jason Kristinn Ólafsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Miklaborg fasteignasala
Lágmúli 4, 108 Reykjavík
jko@miklaborg.is
775-1515

