Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hallgrímur Óskarsson






















Vörðuland 6, 800 Selfoss 73.000.000 kr.
115,6 m², raðhús, 4 herbergi
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Vörðuland 6, Selfossi. Í einkasöluUm er að ræða fallegt og snyrtilegt 90,0 fm. raðhús ásamt 25,6 fm. bílskúr, samtals 115,6 fm. Húsið er byggt úr timbri árið 2016 og er klætt að utan með hvítri báruklæðningu og litað járn er einnig á þaki. Að innan er íbúðin tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og anddyri. Flísar eru á gólfum í anddyri, baði og þvottahúsi en harðparket á öðrum gólfum. Í eldhúsinu er hvít innrétting. Á baði er lítil hvít innrétting, walk in sturta, handklæðaofn og upphengt wc. Fataskápar eru í hjónaherbergi og anddyri. Hvít innrétting er í þvottahúsi og tækin þar eru í vinnuhæð. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsinu. Úr stofunni er útgengt á timburverönd bakatil við húsið. Bílskúrinn er fullmálaður. Innkeyrsluhurðin er álflekahurð. Geymsla er afstúkuð í enda bílskúrsins og útgengt er úr henni á baklóðina. Innkeyrsla er hellulögð sem og stétt að útidyrum. Timburverönd er á baklóð. Á baklóðinni er geymsluskúr sem er einangraður og klæddur. Lóðin er frágegnin.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Árni Hilmar Birgisson, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 856-2300, arni@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is

- Brunabótamat53.200.000 kr.
- Fasteignamat46.350.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 1. des. 2022
- Flettingar1164
- Skoðendur995
- 115,6 m²
- Byggt 2016
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 2 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Bílskúr
- Þvottahús




















