
.jpg)










































































Njálsgata 44, 101 Reykjavík 149.900.000 kr.
181,1 m², einbýlishús, 6 herbergi
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á hallgrimur@trausti.is
Nánari lýsing eignar:
Aðalhæð
Sérinngangur er inn á aðalhæð hússins og er anddyrið flísalagt. Gestasnyrting við enda gangsins.
Gengið er niður stiga úr anddyri í þvottahús í kjallara en þar er líka ágæt geymsla.
Eldhúsið er stórt og rúmgott, með parketi á gólfi og vandaðri viðarinnréttingu.
Stofan er björt og státar af upprunalegu viðargólfi sem hefur verið pússað upp og lakkað.
Gengið er upp fallegan viðarstiga úr anddyri upp á aðra hæð hússins þar sem tvö rúmgóð svefnherbergi eru með mikilli lofthæð og ágætu skápaplássi. Fallegt viðarparket er á gólfum. Hluti hæðarinnar er undir súða og er því fermetrafjöldi meiri en skráning segir til um.
Baðherbergi með baðkari, flísalagt í hólf og gólf og með fallegri viðarinnréttingu.
Útgengt er út á stórar svalir sem snúa vel að sólu.
Stór, upphitaður og rúmgóður geymsluskúr er á lóð hússins.
Kjallari
Sérinngangur er inn í kjallara hússins en þar er íbúð sem er í útleigu.
Komið er inn á flíslagat anddyri.
Til vinstri er þvottahús sem er sameiginlegt með efri hæð hússins.
Til hægri er baðherbergi, dúklagt í hólf og gólf, með sturtuaðstöðu.
Lítið en snyrtilegt eldhús með dúk á gólfi
Stofan er snyrtileg og björt, harðparket á gólfi.
Inn af stofunni er svefnherbergi, harðparket á gólfi
Jarðhæð
Á jarðhæð hússins, Njálsgötu megin, er stúdíóíbúð með eldhúskrók og baðherbergi með sturtu. Tengi er fyrir þvottavél inni á baðherberginu.
Garðurinn er afgirtur með skjólveggjum og er hellulagður.
Einkabílastæði fyrir einn bíl er við húsið
Húsinu hefur verið vel við haldið í gegnum tíðina.
Hér er eign á ferðinni með mikla möguleika, tvær útleigueiningar sem skila góðum tekjum, á frábærum stað í miðborg Reykjavíkur. Húsið stendur eitt og sér á hornlóð og er staðsett á rólegum stað við Njálsgötuna, þar sem hvorki veitinga- eða skemmtistaðir trufla íbúa. Öll þjónusta, menning, skólar og leikskólar eru í göngufæri.
Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða á hallgrimur@trausti.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

- Brunabótamat68.250.000 kr.
- Fasteignamat92.800.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð24. jan. 2023
- Flettingar5773
- Skoðendur4612
- 181,1 m²
- Byggt 1910
- 6 herbergi
- 4 baðherbergi
- Sérinngangur
- Þvottahús

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
hallgrimur@trausti.is
896-6020
































































