Domusnova fasteignasala Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur 5271717 - domusnova.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Haukur Halldórsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason

Brekkuhvarf 24, 203 Kópavogur 185.000.000 kr.

247,6 m², einbýlishús, 4 herbergi

Domusnova hefur fengið í einkasölu mjög vel staðsett einbýlishús með aukaíbúð og hesthúsi á stórri lóð við enda götu, Brekkuhvarfs, í Kópavogi. Grunnur að sólstofu hefur verið steyptur með lögnum fyrir gólfhita og niðurfalli fyrir heitan pott. Sólstofan er á teikningum en hefur ekki verið kláruð. Reiðleiðir frá húsinu eru að reiðvegakerfi höfuðborgarsvæðisins. Stutt í útivistarsvæði og alla þjónustu s.s. skóla, leikskóla, verslanir, líkamsrækt og stutt í leiðir útúr borginni. Lóðin er 1509fm að stærð og er hugsanlega hægt að byggja meira á henni miðað við nýtingarhlutfall. Hesthús, sem klætt er harðviði, um 60fm að stærð,  fyrir 8 hesta. Hestagerði er á lóðinni. Bílskúr er notaður sem íbúð til útleigu og eru nýjar innréttingar í henni.

Þegar komið er að eigninni er löng stétt frá götu að húsinu sem gefur því virðulegan svip. Komið er inn í forstofu, dagstofa til hægri, hol til vinstri og úr því gengið inná herbergja gang til vinstri þar sem eru þrjú svefnherbergi og auk þess baðherbergi. Eldhús er beint innúr holinu og er með góðum innréttingum. Þvottahús er á móti inngangi úr forstofu. Grunnur að sólstofu er fyrir utan eldhúsið og eru útgengt úr því á grunninn. Í því sem er teiknað sem bílskúr er 2ja herbergja útleiguíbúð með nýlegum innréttingum. Gott hesthús er á lóðinni og gerði fyrir hesta. Hugsanlega má breyta hesthúsinu í íbúð og leigja út. Lóðin er mjög stór og væri mögulegt að fá að byggja meira á henni en ekki liggur fyrir samþykki um slíkt. Sama gegnheila viðarparketið er á öllum rýmum nema þvottahúsi, forstofu og baðherbergi.

Eldhús er með mjög góðum upprunalegum ítölskum innréttingum og er það rúmgott og hægt að ganga útúr því á grunn að sólstofu sem er afgirtur. Sólstofan er á samþykktum teikningum og eru röralagnir fyrir gólfhita fyrir hendi ásamt niðurfalli fyrir heitan pott..
Stofa er rúmgóð og væri mögulegt að bæta við einu svefnherbergi með því að taka hluta af stofunni.
Hol tengir saman öll rými.
Á svefnherbergisgangi eru þrjú svefnherbergi sem eru ágætlega rúmgóð, skápar sem í þeim eru fylgja en í einu þeirra er ekki skápur.
Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og er þar góður skápur.
Þvottahús með góðum hillum, útgengt til norð-austurs í átt að hesthúsi.
Íbúð í bílskúr er með nýrri IKEA eldhúsinnréttingu og baðherbergið er nýlega endurnýjað. Nýlegt harpðparket á gólfi stofu, eldhúss og svefnherbergis, ekki er skápur í svefnherbergi en þar eru opnar hillur.
Hesthús stendur á lóðinni, í því eru 4 stíur og er þar rúmt um átta hesta og auk þess er þar hnakkageymsla og salerni auk geymslulofts. Hesthúsið er klætt harðviði í hestarýminu.

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Sýna alla lýsingu
    Reikna lán
    • Brunabótamat93.850.000 kr.
    • Fasteignamat133.250.000 kr.
    • Áhvílandi0 kr.
    • Skráð30. jan. 2023
    • Flettingar1192
    • Skoðendur1063
    • 247,6 m²
    • Byggt 2000
    • 4 herbergi
    • 2 baðherbergi
    • 4 svefnherbergi
    • Bílskúr
    • Þvottahús

    Árni Helgason Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala

    Domusnova fasteignasala
    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    arni@domusnova.is
    663-4290


    Lánareiknir: 185.000.000 kr. ásett verð
    Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
    Lántaka: 148.000.000 kr.
    Fyrsta eign:
    Útborgun: 37.000.000 kr.
    Lánstími: 40 ár


    Senda fyrirspurn vegna Brekkuhvarf, 203 Kópavogur

    Verð:185.000.000 kr. Stærð: 148 m² Tegund:Einbýli Herbergi: 4
    Captcha

    * Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

    Domusnova fasteignasala

    Sími: 5271717
    eignir@domusnova.is
    domusnova.is

    Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
    Víðir Arnar Kristjánsson
    Haukur Halldórsson
    Björgvin Þór Rúnarsson
    Árni Helgason
    Aðalsteinn Bjarnason

    Eignin var skráð 30 janúar 2023
    Síðast breytt 28 febrúar 2023

    Senda á vin eignina Brekkuhvarf, 203 Kópavogur

    Verð:0 kr. Stærð: 148 m² Tegund:Einbýli Herbergi: 4
    Captcha

    * Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

    Domusnova fasteignasala

    Sími: 5271717
    eignir@domusnova.is
    http://domusnova.is

    Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
    Víðir Arnar Kristjánsson
    Haukur Halldórsson
    Björgvin Þór Rúnarsson
    Árni Helgason
    Aðalsteinn Bjarnason

    Eignin var skráð 30 janúar 2023
    Síðast breytt 28 febrúar 2023

    Senda ábendingu á Fasteignir.is

    Captcha

    Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

    Fasteignir.is

    Available in the App Store