Domusnova fasteignasala Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur 5271717 - domusnova.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Haukur Halldórsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason

Hádegisskarð - neðri hæð 8, 222 Hafnarfjörður 99.500.000 kr.

181,7 m², hæð, 6 herbergi

** Eignin er seld með fyrirvara **

Sölvi Sævarsson og Domusnova fasteignasala kynna í sölu:  Glæsilegt tvíbýlishús með tveimur íbúðum með sérinngangi í byggingu við Hádegisskarð 8 í Hafnafirði. Húsið er á tveimur hæðum með íbúð á neðri hæð og efri hæð.
Bílskúrar fylgja báðum íbúðunum. Teikninginn er mjög glæsileg og góð grunnmynd og gott innra skipulag í báðum íbúðunum. 
Um að ræða neðri sérhæð 01-01 er 5 herbergja 149,9 fm íbúð ásamt 31,8 fm bílskúr sem innangengt er í eða alls 181,7 fm. Góður, stór sérnotareitur þar sem sýndur er pallur á suðvesturhlið hússins. Verð: 99,5 milljónir kr.

Efri hæð húsins íbúð 02-01 er 4ra herbergja 132,6 fm íbúð ásamt 36,4 fm bílskúr eða alls 169 fm.
Glæsilegar 103 fm þaksvalir út af efri hæð með glæsilegu útsýni. Verð á efri hæð: 97,8 milljónir kr.
 
Húsið er alls samtals 350,7 fm með tveimur bílskúrum skv. Þjóðskrá Íslands. 
Um tvær íbúðir er að ræða sem seljast í sitt hvoru lagi þar sem um tvö fastanúmer er að ræða.
Húsið er einnig til sölu sem ein heild.  Verð 197.300.000.-


Húsið skilast tilbúið til innréttinga að innan og fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð á byggingarstigi 5, samkvæmt eldri byggingarreglugerð. Sjá skilalýsingu seljanda fyrir neðan miðað við fokhelt að innan og fullbúið að utan með grófjafnaðri lóð.
 
Allar frekari upplýsingar veitir Sölvi Sævarson löggiltur fasteignasali í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is 
 
Nánari lýsing á skipulagi húss skv teikningu arkitekts: 
Íbúð á neðri hæð:  Teikning sýnir, anddyri með góðu skáparými. Bílskúr sem innangengt er í úr anddyri. Alrými sem er eldhús, borðstofa, sjónvarpshol og stofa.  Þrjú ágætlega rúmgóð barnaherbergi og stórt hjónaherbergi með fataherbergi ásamt baðherbergi inn af hjónarými. Einnig er annað gott baðherbergi með góðu þvottarhúsi í sama rými. Geymsla inn af bílskúr.
  
Hádegisskarð 8 Hafnarfirði
Skilalýsing:
Fullbúið að utan án lóðarfrágangs, tilbúið til innréttinga að innan.

Frágangur utanhúss: 
Almennt:  Húsinu verður skilað fullfrágengnu að utan, og að innan samkv byggingastigi 5 IST 51.2001. , þó með þeim undantekningum sem frá greinir hér á eftir. 
Frágangur utanhúss:
Útveggir: Veggir 1. hæðar. Veggir eru filthúðaðir með steiningarlími og málaðir.
                Veggir 2. hæðar. Klæddir veggir, sem  eru einangraðir með 100 mm steinull og klæddir með  lóðréttri smábáru álklæðningu frá Áltak
Þak:  Þök eru annars vegar  hefðbundin útloftuð sperruþök. Ysta klæðning  þessa þaks þaka er úr PVC dúkur og hins vegar steypt þok , sem eru einangruð með min 200 mm polystyren plasteinangrun , sem fergt er niður með núinni sjávarmöl.
Niðurföll eru úr lituðu blikki litur Ral 7016.  Kantar þakbrúna eru dökk gráir að lit samsvarandi litur og á klæðningu.. 
Handrið: Svalahandrið er  úr steypu, og  gleri . 
Gluggar:  Gluggar eru álklæddir trégluggar úr furu og opnanleg fög og hurðir úr furulímtré.  Allir gluggar og hurðir eru gráir Ral 7016  Gler er tvöfalt k gler, glært Top N+ gler.  Bílskúrshurð er  grá stálfellihurð.  Litur RAL 7016. 
Lóð:  Lóð verður grófjöfnuð, þ.e. Jarðvegsskiptum verður lokið undir  hellulögnum, og önnur svæði skilast ca 20- 30 cm undir endanlegu yfirborði..
 
Frágangur innanhúss: 
Veggir:  Hluti útveggja  eru einangraðir að innan og þá  með 100 mm  polystyren einangrun, múrhúðaðir, og sandsparslaðir.
Útveggir sem eru einangraðir að utan er skilað sandspörsluðum . 
Léttir innveggir eru hefðbundnir gipsveggir. Þ. 2*13 mm gipsplötur  70 mm stálgrind og 50 mm einangrun, skilað tilbúnum undir spörslun
Steyptir innveggir er skilað sandspörsluðum.
Veggir í votrýmum Þ.e þvottahúsum og böðum eru  hlaðnir með 120 mm gassteypusteinum. 
Loft:  Steypt loft eru sandspörtluð.   Létt loft yfir 2. hæð er skilað með 225 mm  steinullareinangrun, rakavarnarlagi, og raflagnagrind.
Gólf:   Gólf verða frágengin í rétta hæð undir endanlegt slitlag. Yfirborð gólfa er ekki rykbundið.
Lagnir:
Hitalagnir:  Húsið er upphitað með gólfhitalögnum sem eru frágengnar að undanskildum hitastillum í herbergjum og stýribúnaði í gólftengikistu, þ.e segulrofar stjórntölva og þ.h.  Bílskúr er upphitaður með ofni og skilast hann fullfrágenginn.  
Neysluvatnslagnir:  Neysluvatnslagnir verða tengdar við stofninntak og frágengnar að tækjum.
Frárennslislagnir:  Frárennslislagnir verða  frágengnar að tækjum, og að
niðurföllum.   Lagnir eru frágengnar að niðurföllum.  Sturtuniðurföll og endanlegur frágangur  á öðrum  á niðurföllum fylgir ekki þar sem hæð niðurfalla verður að fylgja með hæð valdra gólfefna.  Niðurföll í þvottahús og bílskúr fylgja þó með, en á þá eftir að ganga frá þeim í endanlega hæð.
 Raflagnir:
Allar pípur fyrir lá og smáspennu milli taflna og tengidósa, loftadósa og tengla verða fullgerðar Vinnuljós verða tengd í hverju herbergi. Tenglar úti, útiljós og dyrasími fylgja ekki.  Ekki er gert ráð fyrir hefðbundnum loftnetslögnum í byggingunni. 
Lýsing byggingarinnar er að mestu hugsuð með innfeldum led ljósum.  Ljósakassar fyrir þau ljós sem eru ísteypt ,eru komin
  
Almennt:
Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi íbúða við Hádegisskarð 8,  Hafnarfirði.  Vakin er athygli á því að byggingaraðili áskilur sér rétt til að gera útlits,efnis, og tæknilegar breytingar á byggingatímanum.  Ef um slíkar breytingar er að ræða, skal byggingaraðili leitast við að halda sambærilegum gæðum byggingahluta og íhluta.
 
Vísað er til hönnunargagna ( m.a byggingarnefndateikninga ) varðandi nákvæmar útfærslur á atriðum sem ekki koma fram í skilalýsingunni.  Auglýsingaefni og 3D teikningar eingöngu til hliðsjóna.  Komi upp vafamál og eða misræmi eru samþykktar teikningar gildandi.  Almennt miðast skil hússins við vandaðan frágang og viðurkennd skil á íbúðarhúsnæði.
 
Áður en íbúðum er skilað mun verktaki þrífa íbúðirnar.  Athuga skal þó að mikið ryk fylgir framkvæmdum og geta því kaupendur átt von á því að þurfa að þurka af aftur við afhendingu. 
Í nýjum íbúðum getur verið mikill byggingaraki.  Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum, en það er þó algjörlega háð útloftun í íbúðinni.
Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri.  Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt gluggann, málningu,sparsl og sólbekki.  Því er nauðsynlegt að hafa gluggann lítillega opin til að tryggja útloftun,  sérstaklega þegar tekur að kólna. 
Íbúðaeigandi gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina.  Einnig skal ætið fylgjast vel með niðurföllum í bað og þvottaherbergjum og niðurföllum í svölum og þaki.
 
Svalagólf er nauðsynlegt að sílanbera á tveggja ára fresti.
 
Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki. 
Varast skal að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna sprunguhættu og rakamyndunar. 
Aðalhurðir hússins svo og bílgeymsluhurð þarf að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra.  Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt og skipta þarf um gorma bílgeymsluhurðar með nokkurra ára millibili.
 
Við afhendingu íbúða fer fram sameiginleg skoðun seljanda og kaupanda, þar sem farið er yfir helstu atriði og bætt úr ef einhverjir ágallar finnast.
Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr steypu og timbri eða öðrum atriðum sem heyra undir viðhald hússins.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 67.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat0 kr.
  • Fasteignamat0 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð 4. feb. 2023
  • Flettingar442
  • Skoðendur363
  • 181,7 m²
  • Byggt 2022
  • 6 herbergi
  • 4 svefnherbergi
  • Sérinngangur
  • Bílskúr

Lánareiknir: 99.500.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 79.600.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 19.900.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Hádegisskarð - neðri hæð, 222 Hafnarfjörður

Verð:99.500.000 kr. Stærð: 149.9 m² Tegund:Hæð Herbergi: 6
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Domusnova fasteignasala

Sími: 5271717
eignir@domusnova.is
domusnova.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Víðir Arnar Kristjánsson
Haukur Halldórsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason

Eignin var skráð 4 febrúar 2023
Síðast breytt 2 mars 2023

Senda á vin eignina Hádegisskarð - neðri hæð, 222 Hafnarfjörður

Verð:0 kr. Stærð: 149.9 m² Tegund:Hæð Herbergi: 6
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Domusnova fasteignasala

Sími: 5271717
eignir@domusnova.is
http://domusnova.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Víðir Arnar Kristjánsson
Haukur Halldórsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Árni Helgason
Aðalsteinn Bjarnason

Eignin var skráð 4 febrúar 2023
Síðast breytt 2 mars 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store