




























Grýtubakki 30, 109 Reykjavík 59.500.000 kr.
105 m², fjölbýlishús, 4 herbergi
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Björt og vel skipulögð 4ja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi við Grýtubakka 30 í Breiðholti, 109 Reykjavík. Íbúðin er merkt nr. 070201 og er 105,1 fm og skiptist í hol, stofu- borðstofu og eldhús í opnu rými, 3 svefnherbergi, baðherbergi og 14 fm sérgeymslu í sameign.
Birt stærð samkvæmt HMS 105,1 m2.
Fasteignamat 2023 er 49.650.000.
Nánari lýsing:
Íbúðin var öll tekin í gegn árið 2022, nýtt parket, hurðar, innréttingar, baðherbergi, ljós, tenglar og rofar. Skipt var um alla glugga í byggingunni fyrir ca 2-3 árum.
Komið er inn í hol/anddyri með fatahengi og viðarparket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með viðarparketi á gólfi og útgengt út á rúmgóðar svalir.
Eldhúsið er snyrtilegt dökkgrátt IKEA eldhús frá 2022. Viðarparket á gólfi.
Svefnherbergi 3 rúmgóð svefnherbergi með viðarparketi á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni og walk in sturtu.
Þvottahús tengi á baði fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Geymsla Rúmgóð 14 fm sérgeymsla er innan sameignar með góðum hillum.
Sameign sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Rúmgóðar svalir eru til austurs.
Einstaklega fjölskylduvæn og vel staðsett eign í bökkunum í neðra Breiðholti. Öll þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying í göngufæri. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

- Brunabótamat41.750.000 kr.
- Fasteignamat49.650.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð24. feb. 2023
- Flettingar2128
- Skoðendur1745
- 105 m²
- Byggt 1968
- 4 herbergi
- 1 baðherbergi
- 3 svefnherbergi
- Sameiginl. inngangur
- Svalir

























