Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Vista
fjölbýlishús

SPÁNAREIGNIR - Lo Romero Golf

953 Spánn - Costa Blanca

35.200.000 kr.

434.568 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F3001802

Fasteignamat

0 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
81 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÍBÚÐIR VIÐ HINN VINSÆLA LO ROMERO  GOLFVÖLL*

Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir við hinn vinsæla  Lo Romero golfvöll, stutt frá Pilar de la Horadada, snyrtilegum spænskum bæ ca. 60 mín akstur í suður frá Alicante. Góð verönd út frá stofu og sér garður fylgir íbúðum á jarðhæð, svalir á íbúðum á miðhæð og sér þakverönd fylgir íbúðum á efst hæð.  Um 15 mín akstur á ströndina. Útsýni yfir hinn fallega Lo Romero 18 holu golfvöll og auk þess eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas. Lokað svæði, tryggir aukið öryggi.  Fallega gróið umhverfi með göngu-og hjólaleiðum. 
Íbúðirnar eru vel skipulagðar með góðu alrými, tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum.  AÐEINS ÖRFÁAR ÍBÚIR EFTIR.


Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 OG
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277

Nánari lýsing:

Íbúðirnar skiptast í gott eldhús, með góðri tengingu við stofu og borðstofu í rúmgóðu alrými.
Hjónasvíta með sér baðherbergi og góðum skápum. Eitt svefnherbergi til viðbótar + auka baðherbergi.
Út frá stofunni er góð verönd og lítill sér garður, Kjörin aðstaða til að njóta útiveru í góðu veðri allt árið.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.
Sér merkt bílastæði fylgja öllum íbúðum.
Aðgengi að sameiginlegum sundlaugargarði.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða, algjöra útivistarparadís í rólegu og fallegu umhverfi, en örstutt frá stöðum sem gaman er að heimsækja. Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni. Draumaeign golfarans.

Verð miðað við gengi 1Evra=150ISK:
Miðhæð með góðum svölum, 2 svefnh. + 2 baðh. 234.900 Evrur (ISK 35.200.000) + kostn. við kaupin

Á sama stað er líka hægt að velja
Jarðhæð, 2 svefnh. + 2 baðherb. 249.900 Evrur. (ISK 37.800.000) + kostn. við kaupin og
efstu hæð með einkaþakverönd, 2 svefnh. + 2 baðherb. 254.900 Evrur (ISK 38.200.000) + kostn. við kaupin.
Afhendingartími er frá júní 2023 - september 2024 eftir því hvaða eign er valin.

Hægt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótarkostnaði. þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Hagstæð fjármögnun í boði úr spænskum bönkum, sem auðveldar kaupin.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
FASTEIGN Á SPÁNI - LJÚFUR LÍFSSTÍLL


Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

LO ROMERO
golfvöllurinn er í flokki vinsælustu golfvallanna á svæðinu. Hann er nokkuð nýlegur, opnaður árið 2008, og er því tæknilega vel hannaður. Fyrri 9. holurnar  falla nokkuð vel inn í náttúrulegt landslagið, en seinni 9. eru meira manngerðar og bjóða upp á ýmsar leiðir að glíma við.
Staðsetning og umhverfi vallarins er notaleg og falleg, gróið og stutt frá strandlengjum Costa Blanca og Costa Calida og er völlurinn umvafinn appelsínu og sítrónutrjám.
LO ROMERO er hannaður af þeim Jorge Gallén og Enric Soler, par 72 og um 6.060 metra langur. Hann reynir á fjölbreytta hæfileika kylfingsins og flestar kylfurnar í pokanum, og gerir það hann skemmtilegan og krefjandi, en samt þægilegan og gefandi.
Eftirminnilegasta hola vallarins er án efa 18. holan og og það er góð tilfinning í lok leiks að ná inn á eyjuna og heyra boltann rúlla ofan í holuna. Takist það ekki langar manni strax til að koma aftur og reyna við þessa holu á ný.

Eiginleikar: golf, útsýni, sameiginlegur sundlaugargarður, sér garður, þakverönd, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Lo Romero,




 

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.