Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hallgrímur Óskarsson





























Lóurimi 8, 800 Selfoss 85.800.000 kr.
196,7 m², einbýlishús, 5 herbergi
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Lóurimi 8, 800 Selfossi. Í einkasöluFrábær staðsetning, innst í botnlanga með skógar rjóður fyrir aftan húsið. Stutt í skóla og leikskóla.
Um er að ræða snyrtilegt 196,7 fm. einbýlishús þar af er frístandandi bílskúr 47,8 fm bílskúr. Húsið er byggt úr timbri árið 1981. Að utan er húsið klætt með standandi timburklæðningu og málað en bárujárn er á þaki. Að innan er húsið fjögur svefnherbergi, herbergjagangur, stofa, eldhús, baðherbergi, forstofa, forstofusnyrting og þvottahús. Parket er á öllum gólfum nema á votrýmum. Í eldhúsinu er ljós rúmgóð innrétting. Á baðherberginu sem hefur verið endurnýjað er sturta, innrétting með vask og salerni. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Forstofan er flísalögð. Forstofusalerni sem er dúklagt en þar innrétting með vask og salerni. Þvottahúsið er með flísum á gólfi og innréttingu með vask en útgengt er úr því á baklóð. Verönd er bæði fyrir framan hús og aftan en á verönd sem er á baklóð snýr í suður. Garðurinn mjög vel gróin. Bílskúr er opið rými með álflekahurð með rafmagnsopnun. Mjög stórt malbikað bílaplan er við húsið.
Virkilega gott fjölskylduhús á eftirsóttum stað.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is

- Brunabótamat78.950.000 kr.
- Fasteignamat80.750.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 3. mar. 2023
- Flettingar4753
- Skoðendur3858
- 196,7 m²
- Byggt 1981
- 5 herbergi
- 2 baðherbergi
- 4 svefnherbergi
- Sérinngangur
- Bílskúr
- Þvottahús



























