Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Aðalheiður Karlsdóttir
Upplýsingar
svg
88 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEGAR ÖRYGGISÍBÚÐIR NÁLÆGT FALLEGRI STRÖND* 
*ÖRYGGISHNAPPUR OG FJARHJÁLPARÞJÓNUSTA FYLGIR ÖLLUM ÍBÚÐUM*

Fallegar og vel skipulagðar 3ja herb. íbúðir vel staðsettar í Mil Palmeras, fallegum spænskum strandbæ, um 60 mín akstur suður frá Alicante. Hægt er að velja um íbúðir á jarðhæð með sér garði, á miðhæðum með góðum svölum og á efstu hæð með svölum og sérþaksvölum. 
Frábær sameign með fallegum sameiginlegum sundlaugargarði, sameiginlegu samkomuherbergi þar sem hægt er að spila og taka þátt í ýmsum tómstundum, líkamsrækt, aðstaða fyrir sjúkraþjálfara, sér herbergi fyrir snyrtifræðinga ofl. Gott aðgengi fyrir fatlaða, td. lyfta ofan í sundlaug, breiðari hurðarop, breiðari gangar í sameign og sérútbúin baðherbergi fyrir fólk með skerta hreyfigetu og fólk í hjólastólum.
Sérstök áhersla er lögð á aukið öryggi íbúa og munu allar íbúðir hafa öryggishnapp með neyðarþjónustu allan sólarhringinn, alla daga ársins. Einn aðalhnappur er í íbúðinni og annar færanlegur sem hafður er um úlnlið. Íbúar eru þannig beintengdir hjálparmiðstöð Rauða Krossins á Spáni sem veitir neyðaraðstoð þegar á þarf að halda og er kostnaður innifalinn í húsgjöldum.
Einnig gefst íbúum kostur á að fá Health Premium kortið frá Quiron Salud,  alþjóðlega sjúkrahúsinu á svæðinu, sem talið er með bestu sjúkrahúsunum í Evrópu. Health Premium kortið veitir forgang og betra aðgengi að persónulegri þjónustu og heilsuráðgjöf til að bæta lífsgæði viðkomandi.
Hér er um að ræða algjöra nýjung á fasteignamarkaðnum á Spáni, sem nýtist fólki sem vill búa í góðu loftslagi og öruggu umhverfi og hafa gott aðgengi að allri heilbrigðisþjónustu.


Fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni. Göngufæri á ströndina og í verslanir og veitingastaði í bænum,  Fallega gróið umhverfi með göngu- og hjólaleiðum.  Íbúðirnar  eru vel skipulagðar með góðu alrými þar sem eru stofa, borðstofa vel tengt eldhúsi, tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi. Lyfta. Stæði í bílakjallara. Geymsla fylgir sumum íbúðunum. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali,adalheidur@spanareignir.is. GSM 893 2495 og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur,   karl@spanareignir. GSM 777 4277

Ekta staður fyrir þá sem vilja njóta útiveru í góðu veðri allt árið, eða jafnvel flytja alfarið í sólarparadísina á Spáni.

Verð miðað við gengi 1 evra = 150 ISK: 
3ja herb.: 2 svefnherb. + 1 baðherb. verð frá 167.000 Evrur (ISK 25.000.000) + kostn. við kaupin.

Á sama stað er einnig hægt að fá aðrar stærðir af íbúðum:
2ja herb.: 1 svefnherb. + 1 baðherb. verð frá: 120.000 Evrur. (ISK 18.000.000) + kostn við kaupin.
3ja herb.: 2 svefnherb. + 2 baðherb. verð frá 176.000 Evrur (ISK 26.400.000) + kostn. við kaupin.  
Afhending í júní 2024.

Hægt er að fá íbúðirnar afhentar fullbúnar húsgögnum og rafmagnstækjum gegn viðbótargjaldi, þannig að allt verði tilbúið þegar flutt er inn.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: http://www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir allt að 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í allt að 13%.

Eiginleikar: sér garður, sameiginlegur sundlaugargarður, bílakjallari, air con, þakverönd, strönd,
Svæði: Costa Blanca, Mil Palmeras,

img
Aðalheiður Karlsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Spánareignir
Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.
img

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Spánareignir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.

Aðalheiður Karlsdóttir

Hólmgarður 34, 108 Reykjavík.