Byggð fasteignasala Skipagata 16, 600 Akureyri 4649955 - www.byggd.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado

Dalsgerði 2 F , 600 Akureyri 81.000.000 kr.

151,8 m², raðhús, 6 herbergi

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Dalsgerði 2 F

Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5-6 herbergja enda raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á mjög vinsælum stað í botnlangagötu á efri Brekku. Eignin er samtals 151,8 fm. en auk þess er um 12-14 fm. geymsluskúr á lóð sem snýr til austurs. Vestan við hús er aðalinngangur og þar eru svalir, verönd og gróin afgirtur garður. Eignin snýr vel við sólu og er í norður enda hússins við sameiginlegt bílastæði með Dalsgerði 4. 

Eignin var mjög mikið endurnýjuð að innan fyrir um 10 árum, meðal annars settur gólfhiti, ný gólfefni og loftaklæðning á efri hæð, nýjar innihurðar, eldhús, bæði baðherbergi og þvottahús. 

Eignin skiptist í tvær jafn stórar hæðir, tvær forstofur, fjögur svefnherbergi sem hægt er að fjölga í fimm, stofu og borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi á sitthvorri hæðinni, fataherbergi og þvottahús ásamt geymslu undir stiga. 

Efri hæð: 
Forstofa er með parket á gólfi og opnu fatahengi.  
Eldhús er með parket á gólfi og hvítar flísar á veggjum, rúmgóðri innréttingu frá IKEA reykt hnota með hvítri bekkjarplötu, stæði fyrir uppþvottavél, tvöfaldan ísskáp, bakaraofn í vinnuhæð og innbyggðan combi örbylgjuofn.
Stofa og borðstofa er samliggjandi og björt, þar er parket á gólfi og útsýni til vesturs að Hlíðarfjalli. Möguleiki er að minnka stofuna og koma fyrir fimmta svefnherberginu. 
Baðherbergi er með flísalagt í hólf og gólf, baðkar, innréttingu undir vask og á vegg gegnt honum ásamt upphengdu salerni. 
Svefnherbergi hæðarinnar er með parket á gólfi og skáp. 
Stigi milli hæða er parketlagður og veggur klæddur með Dápuhlíðargrjóti.

Neðri hæð: 
Forstofa er með parket á gólfi og opnu fatahengi.
Gangur er með parket á gólfi og tengir öll rými hæðarinnar.
Svefnherbergi eru þrjú öll með parket á gólfi. 
Fataherbergi er við hlið svefnherbergis sem snýr til vesturs. Þar er parket á gólfi og fjórir opnir skápar. 
Baðherbergi er innst og er flísalagt í hólf og gólf, þar er sturta með sturtugleri, skápur undir vask og speglaskápur fyrir ofan ásamt upphengdu salerni. 
Þvottahús er mjög rúmgott með flísar á gólfi, góðri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara, vask og borðplötu undir glugga. 

Geymsluskúr byggður 2020 er ca. 12-14 fm., mjög vandaður, byggður úr timbri með einhallandi þaki í takt við þak íbúðarhúss. Skúrinn er einangraður og leitt í hann rafmagn, klæddur að innan og málað timburgólf. Við hann er timburpallur með skjólveggjum. 

Eigendur skoða skipti á fjögurra herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð eða blokkaríbúð á svipuðum stað. Fjögurra herbergja íbúð nyrst í Naustahverfi kemur einnig til greina.  

Annað:
-Skipt um gler á efri hæð 2021 og settir plastlistar - sólstopp/einangrunargler í vesturhlið
-Hiti í gólfum 
-Nettenglar í öllum herbergjum og stofu
-Parket íbúðar er Quick step frá Harðviðarvali
-Húsið málað að utan 2021
-Timburverk utan um garð til vesturs framkvæmt 2018-19
-Timburverk og pallur austan við hús 2019-20
-Steypt stétt vestan við hús en hellur á verönd
-Rakaverjandi efni sett á tröppur og svalir 2021
-Hellulögð stétt við austurinngang á neðri hæð
-Jarðvegsskipt meðfram norðurhlið hússins 2018
-Ljósleiðari 
-Stutt í leik- og grunnskóla, íþróttasvæði KA og ýmis konar verslun og þjónustu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat61.900.000 kr.
  • Fasteignamat58.300.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð13. mar. 2023
  • Flettingar3582
  • Skoðendur2800
  • 151,8 m²
  • Byggt 1972
  • 6 herbergi
  • 2 baðherbergi
  • 4 svefnherbergi
  • Útsýni
  • Þvottahús

Lánareiknir: 81.000.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 64.800.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 16.200.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Dalsgerði 2 F, 600 Akureyri

Verð:81.000.000 kr. Stærð: 151.8 m² Tegund:Raðhús/Parhús Herbergi: 6
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Byggð fasteignasala

Sími: 4649955
bjorn@byggd.is
www.byggd.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado

Eignin var skráð 13 mars 2023
Síðast breytt 17 mars 2023

Senda á vin eignina Dalsgerði 2 F, 600 Akureyri

Verð:0 kr. Stærð: 151.8 m² Tegund:Raðhús/Parhús Herbergi: 6
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Byggð fasteignasala

Sími: 4649955
bjorn@byggd.is
http://www.byggd.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Björn Guðmundsson
Berglind Jónasardóttir
Greta Huld Mellado

Eignin var skráð 13 mars 2023
Síðast breytt 17 mars 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store