Fasteignasala Suðurlands Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn 4833424 - www.eignin.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðbjörg Heimisdóttir

Vesturbakki 5 Hobbýbil geymslur , 815 Þorlákshöfn 19.700.000 kr.

68,1 m², atvinnuhúsnæði, 0 herbergi

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir: Vesturbakki 5, Þorlákshöfn. Um er að ræða 12 NÝJAR GEYMSLUR / HOBBÝBIL, 66,4 m² að stærð, á einni hæð.
Húsnæðið er mjög vel staðsett og afhendist fullbúið með malbikaðri lóð
. Smellið hér fyrir staðsetningu

* Allar nánari upplýsingar fást í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com *

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í 12 einingar, 65,3 - 65,5m2 hvert að birtu flatarmáli.
Allar einingar eru með ræstivask og salerni.
Byggingin er á einni hæð.
Lóðin verður malbikuð, gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir framan hverja einingu.


Uppbygging húss:
Húsið er byggt ofan á steypta sökkla.
Gólfplata:
Hefðbundin staðsteypt plata, einangruð að innan með gólfhita. Neysluvatnslagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningm, rör í rör.
Útveggir/ þak / þakkantur / burðarvirki:
Allir útveggir og þak hússins eru úr yleiningum, samlokueiningar frá Kingspan. Burðarvirki er límtré. Litur klæðninga að utanverðu er RAL7016 og að innan RAL 9010. Þakkantur er einfaldur, stálklæddur í sama lit og þakefni með utanáliggjandi álrennum og niðurfallsrörum í sama lit.
Gluggar og hurðir: Iðnaðarhurðir eru frá viðurkenndum og þekktu framleiðanda í góðum gæðum, litur RAL 7016, og rafmótoropnun. Gönguhurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu PVC plasti með tvöföldu einangrunargleri. Litur RAL 7016.
Frárennslis og neysluvatnslagnir: Skólp‐ og regnvatnslagnir eru fullfrágengnar og tengdar fráveitukerfi í götu. Salerni eru fullfrágengin í hverri starfseiningu. Gólfniðurfall er fyrir innan allar innkeyrsluhurðir. Deilikistur fyrir neysluvatn frágengnar í hverri starfseiningu og tengt úr henni í viðkomandi viðtaka: salerni og mögulega eldhúsinnréttingu undir stiga. Brunaslanga frágengin og tengd. Niðurföll af malbikuðum plönum frágengin og tengd fráveitukerfi.
Hitakerfi: Gólfhitakerfi sem er innsteypt í botnplötuna á járnagrind komið í hverja starfseiningu, deilikista með hringrásarkerfi tengd í hverri einingu. Kerfi stjórnað með handvirkum ofnloka.
Rafmagn: Aðaltafla með mælum fyrir hverja starfseiningu frágengin í inntaksrými. Greinatafla frágengin í hverri starfseiningu með einum þriggja fasa tengli við hliðina. Tenglar á nokkrum stöðum í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar. Full lýsing (LED) í hverri starfseiningu skv. grunnhönnun raflagnahönnuðar sem uppfyllir viðkomandi reglur. Raflagnir lagðar í aðgengilegum kapalstigum, auðvelt að breyta ljósum, slökkvurum, tenglum og slíku ef þurfa þykir. Útiljós við hurðir á hverri starfseiningu sem hægt er að stjórna frá viðkomandi einingu og tengist viðkomandi mæli (ekki sameign).
Gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla við hverja einingu.
Lóð: Lóð afhendist malbikuð.
Virðisaukakvöð hvílir á húsinu sem kaupandi yfirtekur.

Skipulagsgjald:
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Byggingin verður í notkunarflokki 1. samkv. byggingareglugerð en um er að ræða geymslur í þeim flokki.
Skil hússins miðast við ÍST51:2021 BS4 – Fullgerð bygging. A:T:H þetta er nýr staðall um skil á byggingarstigum húsa.


FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.
Heimasíða fasteignasölunnar: https://www.eignin.is/

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat20.400.000 kr.
  • Fasteignamat9.920.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð14. mar. 2023
  • Flettingar384
  • Skoðendur235
  • 68,1 m²
  • Byggt 2023
  • 0 herbergi
  • 1 baðherbergi
  • Sérinngangur
  • Garður

Guðbjörg Heimisdóttir Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala

Fasteignasala Suðurlands
Unubakki 3b, 815 Þorlákshöfn
fastsud@gmail.com
483-3424


Lánareiknir: 19.700.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 15.760.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 3.940.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Vesturbakki 5 Hobbýbil geymslur, 815 Þorlákshöfn

Verð:19.700.000 kr. Stærð: 68.1 m² Tegund:Atvinnuhúsnæði Herbergi: 0
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignasala Suðurlands

Sími: 4833424
fastsud@gmail.com
www.eignin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Guðbjörg Heimisdóttir

Eignin var skráð 14 mars 2023
Síðast breytt 19 maí 2023

Senda á vin eignina Vesturbakki 5 Hobbýbil geymslur, 815 Þorlákshöfn

Verð:0 kr. Stærð: 68.1 m² Tegund:Atvinnuhúsnæði Herbergi: 0
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignasala Suðurlands

Sími: 4833424
fastsud@gmail.com
http://www.eignin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Guðbjörg Heimisdóttir

Eignin var skráð 14 mars 2023
Síðast breytt 19 maí 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store