Lind fasteignasala ehf. Bæjarlind 4, 201 Kópavogur 5107900 - www.fastlind.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Sigríður Agnes Sigurðardóttir
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Sigrún Ragna Sigurðardóttir
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson

Nökkvavogur 34, 104 Reykjavík 94.900.000 kr.

164,1 m², hæð, 5 herbergi

Eignin er seld með fyrirvara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega og vel staðsetta 5 herbergja 120,6 fermetra sérhæð og ris ásamt stórum nýlegum 43,5 fermetra bílskúr, samtals 164,1 fermetrar að stærð í grónu fjölskylduhverfi við Nökkvavog 34 í Reykjavík. Sérinngangur er á aðalhæð ásamt tveimur útgöngum á verönd í bakgarði og einnig er útgengt úr sameign í kjallara.

Hæðin er vel skipulögð með rúmgóðum rýmum og útgengi afgirta verönd til suðvesturs með heitum potti frá stofu og glerskála við eldhús. Tvær stofur eru í eigninni í dag en nýta mætti aðra stofuna sem stórt svefnherbergi (fjórða svefnherbergið). Eldhús liggur við bjartan glerskála með góðu borðplássi (gæti verið nýtt sem borðstofa ef önnur stofa væri notuð sem fjórða svefnherbergið). Baðherbergi er staðsett á aðalhæð. Gengið er upp í ris frá forstofu. Í risi eru staðsett tvö góð svefnherbergi, snyrting og geymsla.

Möguleiki er að kaupa 3ja herbergja kjallaraíbúð í húsinu (sem er í eigu sama aðila) og nýta eignina sem einbýlishús með aukaíbúð í kjallara.

Lóðin er 629,0 fermetrar að stærð og sameiginleg með kjallaraíbúð. Tyrfður garður til suðurs og vesturs með fallegum trjágróðri. Norðan megin við hús er hellulögð stétt að húsi og bílskúr með snjóbræðslu. Sérbílastæði er staðsett fyrir framan bílskúr.

Að sögn seljanda hefur húsið fengið gott viðhald á undanförnum árum. M.a. var húsið steinað fyrir stuttu síðan. Þakið var endurnýjað árið 2004 þar sem skipt var um timbur, dúk og járn. Þá voru skólplagnir endurnýjaðar frá húsi (baðherbergi kjallara) og út í brunn og þaðan út í götu fyrir u.þ.b. 2 árum síðan. Nýlegar rafmagnstöflur eru í eigninni og búið er að skipta um ofna á efri hæð/rishæð. Bílskúr var byggður árið 2015 og lítur mjög vel út. Aukin lofthæð er í bílskúr, stór innkeyrsluhurð og inngangshurð ásamt gluggum. Möguleiki væri að útbúa séríbúð í bílskúr.


Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi.
Gangur: Með fatahengi og flísum á gólfi.
Borðstofa: Með gegnheilu parketi á gólfi, glugga til suðurs og útgengi á verönd.
Verönd: Er afgirt og með heitum potti. Verönd snýr til suðvesturs inn í bakgarð hússins.
Stofa: Með gegnheilu parketi á gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Stofa er opin við borðstofu.
Eldhús: Með parketi á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu með graníti á borðum. Gaseldavél og AEG bakaraofn. Nýleg AEG uppþvottavél og stál vifta. Flísar á milli skápa og lýsing undir efri skápum.
Glerskáli: Er opinn við eldhús. Parket á gólfi. Nýtist vel sem stór borðkrókur eða borðstofa. Gluggar til suðurs og vesturs. Útgengi á verönd.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Flísalögð sturta. Innrétting við vask með graníti á borðum. Upphengt salerni, handklæðaofn og góðir skápar. Útloftun er úr baðherbergi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og skápum á heilan vegg sem ná upp í loft. Gluggi til austurs.

Efri hæð/rishæð. Stærri að grunnfleti þar sem hluti er undir súð sem nýtist vel. 
Hol: Með kork á gólfi.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með kork á gólfi og gluggum til suðurs og vesturs.
Svefnherbergi III: Með kork á gólfi og glugga til norðurs.
Snyrting: Með kork á gólfi, salerni, vask og glugga til vesturs.
Geymsla: Er rúmgóð. Hluti undir súð.

Bílskúr: Er stór eða 43,5 fermetrar að stærð. Byggður árið 2015 og lítur vel út. Stór innkeyrsluhurð (2,9m á hæð og 3,2m á breidd) með rafmagnshurðaopnara. Mikil lofthæð og inngangshurð frá suðurhlið. Epoxy gólf . Upphitaður og nýleg rafmagnstafla. Heitt/kalt vatn. 

Þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara og er sameiginlegt með kjallaraíbúð hússins. Flísar á gólfi, þvottasnúrur og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara.
Sameiginlegt hitarými: Er inn af þvottaherbergi í kjallara. Gluggi og hillur.

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Nökkvavog í Reykjavík þaðan sem stutt er í skóla á öllum skólastigum, Íþróttasvæði Þróttar, Laugardagslaug, alla verslun og þjónustu og alla aðra afþreyingu sem Laugardalurinn hefur upp á að bjóða. Stutt er í helstu stofnæðar frá hverfinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat73.150.000 kr.
  • Fasteignamat82.700.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð24. mar. 2023
  • Flettingar1226
  • Skoðendur873
  • 164,1 m²
  • Byggt 1949
  • 5 herbergi
  • 2 baðherbergi
  • 3 svefnherbergi
  • Bílskúr
  • Þvottahús

Heimir Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala

Lind fasteignasala ehf.
Bæjarlind 4, 201 Kópavogur
heimir@fastlind.is
849-0672


Lánareiknir: 94.900.000 kr. ásett verð
Veljið upphæð útborgunar og lánstíma í árum.
Lántaka: 75.920.000 kr.
Fyrsta eign:
Útborgun: 18.980.000 kr.
Lánstími: 40 ár


Senda fyrirspurn vegna Nökkvavogur, 104 Reykjavík

Verð:94.900.000 kr. Stærð: 120.6 m² Tegund:Hæð Herbergi: 5
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Lind fasteignasala ehf.

Sími: 5107900
lind@fastlind.is
www.fastlind.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Sigríður Agnes Sigurðardóttir
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Sigrún Ragna Sigurðardóttir
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson

Eignin var skráð 24 mars 2023
Síðast breytt 31 maí 2023

Senda á vin eignina Nökkvavogur, 104 Reykjavík

Verð:0 kr. Stærð: 120.6 m² Tegund:Hæð Herbergi: 5
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Lind fasteignasala ehf.

Sími: 5107900
lind@fastlind.is
http://www.fastlind.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Hannes Steindórsson
Diðrik Stefánsson
Sigríður Agnes Sigurðardóttir
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Sigrún Ragna Sigurðardóttir
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson

Eignin var skráð 24 mars 2023
Síðast breytt 31 maí 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store