Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórarinn Halldór Óðinsson

Leirulækjarsel , 311 Borgarnes Tilboð
380973 m², lóð, 5 herbergi
Nes fasteignasala kynnir í einkasölu:
Jörðin Leirulækjarsel í Borgarbyggð L135941, ásamt ræktun og mannvirkjum er henni fylgja.
Um er að ræða lögbýli um 300 ha að stærð án greiðslumarks, bústofns og véla. Ræktað land sem fylgir með í sölunni er um 25 ha. Jörðin er vel í sveit sett aðeins 18 km. í Borgarnes og þangað er ekið mest á bundnu slitlagi. Bæjarstæðið er á klettaás með miklu útsýni. Þaðan sést til Hafnarfjalls og Skarðsheiðar til suðurs og Snæfellsjökuls til norðurs.
Húskakostur á jörðinni er íbúðarhús, vélaskemma, fjós og hlaða og eldra fjós. Ljósleiðari og þriggja fasa rafmagn er á svæðinu.
Íbúðarhúsið er byggt 1978, klætt að utan 2006. Það skiptist í forstofu, stofu, eldhús með viðarinnréttingu og búri þar innaf, baðherbergi, 4 svefnherbergi þvottahús, bakinngangur með snyrtingu og geymsla. Parket og dúkur eru á gólfum en flísar á baðherbergi.
Fjós hlaða og mjólkurhús. Fjósið er með 26 bása byggt 1975. Stíur eru fyrir geldneyti í hluta hússins. Haughús er undir húsinu. Hlaðan er sambyggð
Vélageymsla byggð 1987. Stálgrindarhús með góðri lofthæð og 2 stórum innakstursdyrum.
Eldra fjós og hlaða með viðbyggðum súrheysturni, eru byggingar sem þarfnast viðhalds.
Einbýlishúsið Blikavatn stendur á sérmetinni lóð á jörðinni og er ekki i í eigu seljanda, möguleiki er á að húsið fáist keypt sé áhugi fyrir hendi.
Jörðin býður upp á mikla möguleika m.a. til hestamennsku, skóræktar eða grænmetisræktar, land jarðarinnar liggur að 3 stöðuvötnum.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi.
Sýna alla lýsingu

- Brunabótamat191.590.000 kr.
- Fasteignamat46.008.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð28. apr. 2023
- Flettingar8626
- Skoðendur7114
- 380973 m²
- 5 herbergi
- 4 svefnherbergi

Þórarinn Halldór Óðinsson Löggiltur fasteignasali innan félags fasteignasala
Nes fasteignasala ehf
Borgarbraut 57, 310 Borgarnesi
thorarinn@fastnes.is
497-0040