Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur 5503000 - www.fasteignamidstodin.is
Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson

Álftanes Borgarbyggð , 311 Borgarnes Tilboð

777,8 m², lóð, 0 herbergi

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu jörðina Álftanes fasteignanúmer F211-1888 og landeignanúmer L135906 í Borgarbyggð.
Álftanes er landnámsjörð en þar hafði Skalla-Grímur bú. Land Álftaness er víðáttumikið talið vera um 2500 hektarar þar af samkvæmt fasteignamati um 26,7 hektarar ræktuð tún.
Auk þess er landið gróið og að hluta votir flóar, settir klapparásum, en sandbakkar og fitjar við ströndina. Útfiri er mikið og langar breiðar skeljasandsfjörur með fjölda skerja úti fyrir. Þeirra þekktast er Þormóðssker, en þar er viti. Álftanes var og getur verið mikil hlunnindajörð, og þaðan var stundað útræði. Jörðin á land vestur að Straumfirði, en við mynni Straumfjarðar er Kóranes. Á síðustu árum 19 aldar var þar starfrækt verslun með fastri búsetu. Álftanesland liggur að landi Miðhúsa og Kvíslhöfða í austri. Að norðan mætir það landi Smiðjuhólsveggja og Sveinsstaða, en að vestan er land Straumfjarðar. Húsakostur sem er all góður er gott íbúðarhús og hesthús og vélageymsla. Einnig fjárhús og hlöður. Bæjarhúsin nema fjárhúsið og hlöðurnar standa vestan undan allháum klettahól sem nefnist Virki, nokkurn spöl frá sjónum. Fjárhúsin og hlöðurnar standa nokkuð fjarri nær túnunum. Einng er lítið gamalt sumarhús sem fylgir með í sölu þessari. Kirkja hefur verið á Álftanesi um aldir, hún stóð áður í kirkjugarðinum sunnan við Virkið, en ný kirkja var byggð norðan við bæinn 1904.
Álftanes er lögbýli og þar er búseta. Kalt vatn frá samveitu og ljósleiðari. Hér er um að ræða óvenju áhugaverða jörð í fögru umhverfi. Staðsetning og umhverfi gefur marga nýtingarmöguleika. Tilboð óskast.

Hér kemur til gamans smá brot úr Egils sögu sem tengist Álfsnesi.
Hér er frásögnin í 31. kafla Egils sögu. Yngvar var sem sagt móðurafi Egils og hafði Skalla-Grímur gefið honum Álftanes: Það vor fór Yngvar til Borgar, og var það að erindum, að hann bauð Skalla-Grími til boðs út þangað til sín og nefndi til þeirrar ferðar Beru, dóttur sína, og Þórólf, son hennar, og þá menn aðra, er þau Skalla-Grímur vildu að færu; Skalla- Grímur hét för sinni. Fór Yngvar þá heim og bjó til veislunnar og lét þá öl heita. En er að þeirri stefnu kemur, er Skalla-Grímur skyldi til boðsins fara og þau Bera, þá bjóst Þórólfur til ferðar með þeim og húskarlar, svo að þau voru fimmtán saman. Egill ræddi um við föður sinn, að hann vildi fara; "á eg þar slíkt kynni sem Þórólfur," segir hann. "Ekki skaltu fara," segir Skalla-Grímur, "því að þú kannt ekki fyrir þér að vera í fjölmenni, þar er drykkjur eru miklar, er þú þykir ekki góður viðskiptis, að þú sért ódrukkinn. "Steig þá Skalla-Grímur á hest sinn og reið í brott, en Egill undi illa við sinn hlut. Hann gekk úr garði og hitti eykhest einn, er Skalla-Grímur átti, fór á bak og reið eftir þeim Skalla-Grími; honum varð ógreiðfært um mýrarnar, því að hann kunni enga leið, en hann sá þó mjög oft reið þeirra Skalla-Gríms, þá er eigi bar fyrir holt eða skóga. Er það að segja frá hans ferð, að síð um kveldið kom hann á Álftanes, þá er menn sátu þar að drykkju; gekk hann inn í stofu. En er Yngvar sá Egil, þá tók hann við honum feginsamlega og spurði, hví hann hefði svo síð komið. Egill sagði, hvað þeir Skalla-Grímur höfðu við mælst. Yngvar setti Egil hjá sér. Sátu þeir gagnvert þeim Skalla-Grími og Þórólfi.

Álftanes Örnefnasafn

Tilvísunarnúmer 10-2659
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang:
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Úlfar Freyr Jóhannsson lögmaður og lögg. fasteignasali sími: 550 3000 ulfar@fasteignamidstodin.is

Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Sýna alla lýsingu
Reikna lán
  • Brunabótamat108.352.000 kr.
  • Fasteignamat27.431.000 kr.
  • Áhvílandi0 kr.
  • Skráð24. júl. 2023
  • Flettingar2391
  • Skoðendur1952
  • 777,8 m²
  • 0 herbergi



Senda fyrirspurn vegna Álftanes Borgarbyggð, 311 Borgarnes

Verð:Tilboð Stærð: 0 m² Tegund:Jörð/lóð Herbergi: 0
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignamiðstöðin

Sími: 5503000
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
www.fasteignamidstodin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Magnús Leopoldsson

Eignin var skráð 24 júlí 2023
Síðast breytt 7 september 2023

Senda á vin eignina Álftanes Borgarbyggð, 311 Borgarnes

Verð:Tilboð Stærð: 0 m² Tegund:Jörð/lóð Herbergi: 0
Captcha

* Það sem er stjörnumerkt verður að fylla út til þess að skráning verði tekin gild.

Fasteignamiðstöðin

Sími: 5503000
fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is
http://www.fasteignamidstodin.is

Fasteignasalar innan Félags fasteignasala
Magnús Leopoldsson

Eignin var skráð 24 júlí 2023
Síðast breytt 7 september 2023

Senda ábendingu á Fasteignir.is

Captcha

Nýtt! Náðu í appið fyrir iPhone símann þinn.

Fasteignir.is

Available in the App Store