Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Magnús Leopoldsson
Vista
lóð

Haukabrekka Snæfellsnesi

371 Búðardalur

25.000.000 kr.

Fasteignanúmer

F2116524

Fasteignamat

5.771.000 kr.

Brunabótamat

16.652.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
0 m²
svg
0 herb.

Lýsing

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími 550 3000 er með til sölu einn hluta í jörðinna Haukabrekka landnúmer 137485 á Skógarströnd.
Jörðin er um 1100 hektarar í einum fallegasta dal á Vesturlandi. Um 20 mínútna akstur er í Stykkishólm; sem margir telja einn fallegasta bæ á Íslandi, þar er boðið upp á alla þjónustu, sundlaug; golfvöll; siglingar, sjávarfuglaveiði, sjóstangaveiði o.s.frv. Sömu eigendur hafa verið að jörðinni síðan 1998.
Sex eigendur eru að jörðinni og eru einn hlutur til sölu. Hverjum eignarhlut fylgir rúmlega hektari lands( ca 1,5 hektari) undir gróður og sumarbústað. Auðveldlega má stækkka þetta land ef vilji er fyrir hendi.
Stóra-Langadalsá rennur um jörðina og kemur tæplega 30% veiðidaga í hlut jarðarinnar. Áin hefur verið ein af bestu bleikjuám á Íslandi, en talsvert hefur dregið úr veiði á bleikju s.l. tvö ár, væntanlega vegna hlýnandi árferðis eða náttúrulegra sveiflna í stofnstærð. Veiði á lax og sjóbirting hefur að sama skapi vaxið verulega. Rúmlega 40 laxar og 40 vænir sjóbirtingar veiddust í ánni í fyrra, þrátt fyrir litla ástundun. Auk þess má gera má ráð fyrir að skráning fiska sé vantalin, enda er nánast ekkert eftirlit með veiðinni. Veitt er á tvær stangir í ánni,og fær Haukabrekka um 30% veiðidaga. Fyrirkomulag veiðidaga er með þeim hætti að veiðidögum til Haukabrekku er úthlutað dögum til sérhvers eiganda, en önnur stöngin er alltaf almenningur fyrir alla eigendur. Talsverðir möguleikar eru því á að komast í veiði. Um 40,4% árinnar er í eigu eiganda Stóra-Langadals sem hefur lítið notað sína veiðidaga, veiði hefur því verið minni fyrir vikið. Í undanfarið hefur verið ákveðið að veiða eingöngu á flugu.  Jörðinni fylgir heiðarvatn, en þangað er um klukkutíma göngutúr, væn bleikja er í vatninu. Auk þess er víða mklir möguleikar á veiði á Vesturlandi.
Jörðin er gott rjúpuland, og ræktun er hafin á ökrum vegna gæsaveiða. Á haustin er talsvert af gæs við sandstrendur heiðarvatnsins. Haukabrekka er frábært sveppa og berjaland, einkum nálægt birkiskóginum inni í dalnum. Búið er að plægja tún til akuryrkju fyrir eigendur.
Bóndabærinn hefur verið gerður upp á smekklegan hátt, öll gólfefni eru nýleg, svo og eldhús og bað. Smekkleg húsgögn eru í húsinu. Bóndabærinn hefur verið klæddur að utan og er að flestu leiti í góðu ásigkomulagi. Bærinn er hæð og ris, neðri hæðin er m.a tvö stór herbergi og stofa. Uppi er eitt herbergi og stórt alrými. Hverjum eiganda er úthlutað vikum í húsinu, yfirleitt eru engin vandkvæði við skipti á vikum við aðra eigendur. Þrír eigendur hafa byggt sér sumarhús á jörðinni og nota húsið því lítið nema fyrir gesti. Jörðinni fylgir lítið verkstæði og hlaða sem gerð hefur verið upp sem geymsluhúsnæði fyrir fjórhjól, kajaka o.fl. Allir eigendur hafa komið sér upp fjórhjólum, sem jók mjög nýtingarmöguleika jarðarinnar.
Haukabrekka hefur verið í sameign 6 fjölskyldna sem almennt þekktust lítið þegar kaupin áttu sér stað. Þetta er ekki vinahópur, heldur hagsmunasamfélag hóps manna sem hefur ánægju af útivist, veiði og gróðurrækt. Gott samkomulag hefur verið um reksturinn. Sérhverjum hlut fylgir þó sumarbústaðarland með glæsilegu útsýni inn í dalinn og til sjávar. Samstarf eigenda hefur verið farsælt. 

Smellið hér til að sjá kort:
Tilvísunarnúmer 10-1558 
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími 550 3000
www.fasteignamidstodin.is 
tölvupóstfang  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm 892 6000 tölvupóstfang  magnus@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir hdl. og lögg. fasteignasali gsm 899 5600
tölvupóstfang
 maria@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir, lögg. fasteignasali 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
 
 
 

Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur
Fasteignamiðstöðin

Fasteignamiðstöðin

Hlíðasmára 17, 200 Kópavogur