
















Bakki Tálknafirði , 461 Tálknafjörður Tilboð
34,6 m², lóð, 0 herbergi
Bakki er staðsettur utarlega á norðurströnd Tálknafjarðar. Landamörk við Stegluá við Kvígindisfell og Sellátraá við Sellátra.
Gömul bæjarstæði eru innan jarðarinnar t.d, Ytri Bakki, Innri Bakki, Hólar, Sæból og Tannanes.
Jörðin hallar til suðurs og nýtur því sólar lengi. Láglendi er talið vera um það bil 250 hektarar en jörðin talin vera tæpir þúsund hektarar.
Um þriggja km strandlengja með hvítum sandi. Einkaflugvöllur um 700 metra langur.
Engin húsakostur nema sumarbústaður sem stendur á steyptri plötu en er nánast ónýtur. Nýtt rafmagn hefur verið tekið inn.
Nýr brunnur fyrir kalt vatn. Ný rotþró. Allt er í raun tilbúið fyrir nýtt hús á gamla grunninn.
Búið er að fara í endurheimt votlendis. Áhugaverð jörð í fögru umhverfi.
Pollurinn (náttúrulaug) er um 5 km innar og í þéttbýli Tálknafjarðar um 10km.
Tilvísunarnúmer 10-2610
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali gsm: 892 6000 magnus@fasteignamidstodin.is
Sjöfn Ólafsdóttir lögg. fasteignasali sími: 550 3000 sjofn@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 maria@fasteignamidstodin.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

- Brunabótamat12.050.000 kr.
- Fasteignamat1.572.000 kr.
- Áhvílandi0 kr.
- Skráð 1. júl. 2022
- Flettingar3905
- Skoðendur5914
- 34,6 m²
- 0 herbergi
- Sérinngangur















