Opið hús: Lágaleiti 11, 103 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 01 05. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. mars 2026 milli kl. 13:45 og kl. 14:30.
Lýsing
Íbúðin er afar björt og rúmgóð með stórum fallegum gólfsíðum gluggum, gólfhita og aukinni lofthæð. Skipulag er mjög gott á íbúðinni með góðu flæði milli eldhúss og stofu, 3 rúmgóðum svefnherbergi, góðu anddyri með skápum, baðherbergi ásamt sér þvottaherbergi með opnanlegum glugga. Gengið er út á sérafnotafleti eignar annarsvegar úr stofu og hinsvegar úr hjónaherbergi. Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara er mjög vel staðsett. Búið að leggja fyrir rafmagni til að setja upp rafmagnshleðslustöð. Möguleiki er að stækka stofu á kostnað svefnherbergis innaf stofu, léttur hlaðin veggur.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is
Staðsetning:
Efstaleitið er í sannkölluðu miðborgarhverfi í göngufæri við helstu verslunar- og þjónustukjarna borgarinnar og falleg útivistarsvæði. Garðurinn er gróðursæll og skjólsæll með reiðhjólaskýlum, leiksvæði og hreyfistöð. Veitingastaðurinn Yndisauki er staðsettur á jarðhæð við Efstaleiti 25 með skemmtilegu útisvæði í inngarðinum. Efstaleitið er nútímalegt íbúðahverfi á einum besta stað í borginni með alla helstu verslun og þjónustu í næsta nágrenni, s.s Kringluna, Borgarleikhúsið, Borgarbókasafnið, Heislugæslu, Yndisauka, verslunarmiðstöðina Austurver þar sem má ma. finna Krónuna, Bakarameistarann og Læknavaktina. Svona mætti lengi áfram telja. Þá er leik- grunn- & menntaskóli í nokkra mínútna göngufjarlægð.
- Rut Káradóttur innanhússarkitekt sá um litaval og samsetningu innréttinga sem eru hannaðar af GKS og smíðaðar af Nobilia í Þýskalandi.
- Vandaðar flísar á baðherbergi og þvottahúsi frá MARAZZI.
- Gólfhiti í stofu rými. Ofnar í herbergjum.
- Aukin lofthæð
- 2 sérafnotafletir
- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Búið að leggja fyrir uppsetningu á hleðslukerfi fyrir rafbíla. Notkun og þjónustugjald er innheimt með húsgjöldum beint til notenda. Ísorka rekur kerfið.
- Virkt húsfélag í umsjón Eignaumsjón. Hússjóður stendur vel.
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott með innbyggðum þreföldum skáp. Gólfhiti
Stofa: Rúmgóð og björt með gólfsíðum gluggum til suðurs og vesturs. Góð tenging við eldhús. Útgengt út á hellulagðan sérafnotaflöt til vesturs, nær sól frá suðri, vestri og norðri. Gólfhiti.
Sérafnotaflötur I: Útgengt úr stofu. Hellulögð. Möguleiki á að setja sílender með lyklaaðgengi að utanverðu og nota þá sem "sérinngang" beint frá bílaplani / garði.
Eldhús: Ljós innrétting með efri skápum og neðri skúffum. Innbyggður ofn í innréttingu, vaskur, span helluborð ásamt innbyggðum gufugleypi fyrir ofan helluborð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Góð tenging við stofu. Gólfhiti.
Herbergjagangur: Tengir saman stofu, anddyri, 2 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Gólfhiti.
Svefnherbergi I: Innaf stofu í suðurenda íbúðar. Gott barnaherbergi. Einnig möguleiki á að opna og stækka þannig stofu. Léttur veggur (Hlaðin)
Svefnherbergi II: Rúmgott með góðu skápaplássi. Útgengt út á viðarverönd.
Sérafnotaflötur II: Viðarverönd inn í garð, rásað lerki.
Svefnherbergi III: Gott barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með opinni sturtu með gólfhalla og glervegg. Upphengt klósett, handklæðaofn, baðinnrétting með skúffum, vask og speglaskáp fyrir ofan vask.
Þvottaherbergi: Innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og skáp fyrir ofan. Neðri skápur með innfeldum vask. Útdraganlegt þvottahengi. Opnanlegur gluggi.
Gólfefni: Vandað gegnheilt eikarparket frá Ebson á öllum gólfum að undanskyldu baðherbergi og þvottahúsi. Gólfhiti í stofu, eldhúsi, anddyri og herbergjagangi.
Geymsla: Í sameign í kjallara, rúmgóð.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði í upphituðum bílakjallara. Búið að leggja fyrir rafmagni fyrir uppsetningu á rafmagnshleðslustöð. Mjög vel staðsett.
Sameign: Öll hin snyrtilegasta.
Lóð: Á lóðunum við Efstaleiti, Lágaleiti og Vörðuleiti er byggðinni skipt upp í tvo meginreiti. Þar mynda misháar íbúðabyggingar hring um skjólsæla garða, útivistar- og leiksvæði. Við hönnun íbúðahverfisins var unnið markvisst með stöllun húsa í hæð, formi og mótun lands svo úr yrði ásýnd stakstæðra húsa. Sameiginleg bílastæði eru á milli reitanna og í kringum húsin. Fallegur og snyrtilegur inngarður með leiksvæði, göngustígum ásamt opinni hjóla og vagnageymslu. Gangstígar eru með snjóbræðslu ásamt svæðum við innganga.
Nánari upplýsingar veitir Hreiðar Levý, lögg. fasteignasala í síma 661-6021, hreidar@betristofan.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.