Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sveinbjörn Halldórsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Díana Arnfjörð
Hulda Ósk Baldvinsdóttir
Vista
hæð

Álfaskeið 55

220 Hafnarfjörður

69.900.000 kr.

706.775 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2072816

Fasteignamat

76.850.000 kr.

Brunabótamat

45.900.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1958
svg
98,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Garður 

Virkilega falleg 98,9 fm 3ja til 4ra herbergja íbúð á 1.hæð við Álfaskeið 55 í Hafnarfirði. Sérinngangur og sérbílastæði fylgir íbúðinni. Eignin er laus við kaupsamning. 

Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is

Nánari lýsing:
Anddyri: Sérinngangur, forstofa með fatahengi.
Svefnherbergi:  Inn af anddyri er rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað baðherbergi með góðri walk in sturtu, hvít innrétting og handklæðaofn. Baðherbergið var endurnýjað 2024. 
Hol: Rúmgott hol sem áður var nýtt sem svefnherbergi. Auðvelt að setja upp vegg til þess að útbúa herbergið. 
Svefnherbergi II: Rúmgott svefnherbergi með fataskáp. 
Stofa: Mjög björt stofa og borðstofa með góðum glugga
Eldhús: Falleg hvít eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og bakarofn í vinnuhæð. Innréttingin lýtur vel út og er gott pláss í kringum innréttinguna. Inn af eldhúsi er bakinngangur þar sem er hægt að komast út á Timburverönd út í garði sem er skráð sameiginlegt rými. 
Þvottahús: Gott þvottahús með hvítri innréttingu þar sem er pláss fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Þvottahúsgólf flotað og IKEA innrétting sett upp 2024.

Garðurinn: 
Á lóðinni (631 fm) eru bílastæði fyrir framan hús og einnig eru stæði með fram húsinu austan megin. Fyrir framan er mjög sólríkur sólpallur með fallegum gróðri og lítilli tjörn sem er sameiginlegt. 
Á baklóð er fallegur garður (geymsluskúr tilheyrir efrihæð). Falleg timburverönd, hellulögð stétt og gras að hluta en svo gengur hraunið inn í lóð að hluta en þar er landið ósnert og engin byggð. 

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað á undanförnum árum og liggur nákvæm lýsing á þeim verkum fyrir hjá fasteignasölu.
En þess má geta að frárennslislagnir frá húsi fóðraðar að hluta og settur niður brunnur í september 2025. Klóaklagnir í plötu myndaðar 2024. Hitaveitugrind endurnýjuð 2024 og kaldavatnsheimtaug lögð ný inn í sept. 2025. Eignaskiptasamningur er fyrir húsið sem var endurnýjaður 2006.


Staðsetning er frábær þar sem eignin er í göngufæri við miðbæ Hafnafjarðar, leikskóla, skóla og framhaldskóla. 

Einnig er möguleiki að kaupa heildareignina ef það er vilji. 

 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

img
Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan Garður
Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
img

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. jan. 2022
47.650.000 kr.
22.152.000 kr.
98.9 m²
223.984 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan Garður

Fasteignasalan Garður

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður

Halldór Freyr Sveinbjörnsson

Bæjarhrauni 12, 220 Hafnarfjörður