Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sævar Þór Jónsson
Vista
fjölbýlishús

Fálkagata 17

107 Reykjavík

54.000.000 kr.

1.258.741 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028659

Fasteignamat

50.150.000 kr.

Brunabótamat

22.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1964
svg
42,9 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax

Lýsing

Fasteignasala Sævars Þórs kynnir vandaða tveggja herbergja 42,9 fm íbúð á 1. hæð við Fálkagötu 17 í þriggja hæða fjölbýlishúsi í Hagahverfi í Reykjavík. Eignin skiptist í forstofu, alrými eldhús, baðherbergi, svalir og geymslu.
 
Nánari lýsing
Komið er inn í íbúðina um parketlagða forstofu. Á gólfum alrýma íbúðarinnar er ljóst parket sem gefur rýminu hlýlegt yfirbragð. Gengið er í alrými íbúðarinnar beint úr forstofunni. Íbúðin er einkar björt með stórum gluggum sem vísa í suður og hleypa mikilli birtu og hlýju inn. Úr alrýminu er opið inn í eldhúsið sem er í sérrými. Eldhúsið er rúmgott með góðri innréttingu og fínu vinnuplássi. Skipt var um eldavél 2021.
Úr alrýminu er útengt á góðar suðursvalir sem stækka rýmir til muna á góðviðrisdögum. Alrýmið og eldhúsið var málað fyrr á þessu ári.
Gengið inn á baðherbergið í gegnum forstofuna. Baðherbergið er snyrtilegt og vel með farið með eldri innréttingu. Gólf og veggir voru flísalögð í fyrra með hvítum flísum auk þess sem skipt var um blöndunartæki í vask.
 
Í sameign er sérgeymsla sem fylgir íbúðinni og sameiginlegt þvottahús.
Stigagangur og öll sameign er sérlega snyrtileg og vel við haldið. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin og litið hefur verið eftir sameigninni reglulega.
Sameign hefur verið mjög vel við haldið sem og stigagangi. Bæði sameignin og húsið að utan eru í góðu ástandi og hafa verið töluvert endurnýjað og yfirfarið á árunum 2017-2025. Húsið var málað í fyrra og gert við múrverk auk þess sem skipt var um glugga á norðurhlið hússins. Árið 2023 voru viðgerðir á sameign sem fólust í bólstrun frárennslisstamma í sameign. Sameignin var máluð og teppalögð 2021 en sama ár voru eldvarnarhurðir að íbúðunum setta upp. Sameiginlegur þurrkari var keypur í þvottahúsið 2022.
 
Íbúðin er staðsett í hjarta Vesturbæjar þar sem stutt er í Ægisíðuna og alla helstu þjónustu. Háskóli Íslands, Melabúðin, Kaffihús Vesturbæjar, Sundlaug Vesturbæjar og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni eru í næsta nágrenni. Húsið var oft kallað Leikarablokkin á árum áður og jafnvel Hollywood vegna fjölda leikara og listamanna sem bjuggu í húsinu. Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á frábærum stað í mjög vinsælu hverfi. Laus strax.
 
Helstu kostir:
  • Afhending: Laus strax við kaupsamning.
  • Skipulag: Björt og opin rými með stórum gluggum.
  • Svalir: Góðar suðursvalir fylgja íbúðinni.
  • Sameign: Snyrtileg og reglulega endurnýjuð sameign.
  • Frábært staðsetning nálægt Ægisíðunni.

img
Sævar Þór Jónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Sævars Þórs
Skipholti 50C, 105 Reykjavík
Fasteignasala Sævars Þórs

Fasteignasala Sævars Þórs

Skipholti 50C, 105 Reykjavík
img

Sævar Þór Jónsson

Skipholti 50C, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. okt. 2012
12.450.000 kr.
14.900.000 kr.
42.9 m²
347.319 kr.
22. okt. 2007
9.730.000 kr.
15.400.000 kr.
42.9 m²
358.974 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Sævars Þórs

Fasteignasala Sævars Þórs

Skipholti 50C, 105 Reykjavík

Sævar Þór Jónsson

Skipholti 50C, 105 Reykjavík