Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingibjörg Þórðardóttir
Þórður S. Ólafsson
Ólafur Már Ólafsson
Upplýsingar
svg
Byggt 1942
svg
268,8 m²
svg
8 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 
 
Flókagata 17 / Englaborg
Einstakt og afar glæsilegt einbýlishús sem Jón Engilberts listmálari byggði fyrir sig og fjölskyldu sína. Gunnlaugur Halldórsson arkitekt teiknaði húsið.
Jón Engilberts bjó í húsinu um áratugaskeið ásamt Tove konu sinni og fjölskyldu. Húsið var í senn heimili og vinnustofa listamannsins. 
Fallegar stofur, fjöldi herbergja og vinnustofa með 4-5 metra lofthæð gera eignina einstaka á sinn hátt. 

Tvær fjölskyldur hafa búið í húsinu frá byggingu þess. 

Bókið skoðun hjá Ólafi M. ÓIafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is

Nánari lýsing
Inngangshæð

Forstofa: Linoleumdúkur á gólfi, fataskápar. Baðherbergi: VIð forstofu, linoleumdúkur á gólfi, flísar á hluta veggja, vegginnfelldir skápar ofan við upphengt salerni, baðkar, gluggi. 
Gler rennihurð aðskilur forstofu og stofur.
Mjög rúmgóð og björt setustofa með gluggum sem vísa upp Flókagötuna, lineloumdúkur á gólfi. Veggur aðskilur borðstofu frá stofu, en unnt er að ganga báðum megin við vegginn sem eykur birtuflæðið í rýminu. Borðstofa er opin við eldhús og er rúmgóð með linoleumdúk á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í suður og þaðan er gengið niður í garðinn. suðaustan við húsið.
Eldhús er með endurnýjaðri innréttingu með góðu skápa og vinnuplássi, eldunareyja sem unnt er að sitja við, borðplata sem flæðir ofaní vaskinn, linoleumdúkur á gólfi, gluggi.

Við forstofu er gengið um steyptan og linoleum dúklagðan stiga upp á næstu hæð þar sem er vinnustofa. Fyrst er komið inn í rými/herbergi með fallegum glugga sem vísar upp Flókagötuna, veggföst bókahilla sem nær upp í loft, flotað gólf. Þaðan er gengið inn í vinnustofuna sem er með ríflega fjögurra metra lofthæð, stór gluggi í norður úr óregon pine sem nær að hluta inn á þakið og langleiðina niður í gólf. Lýsingin á vinnustofunni er mjög vönduð og  sambærileg lýsingu á listasöfnum og galleríum landsins. Concorde kastarar og bjartar flúrperur.
Vinnustofan (salurinn) gefur húsinu mikla sérstöðu enda fáheyrt að húseignir bjóði uppá aðstöðu af þessu tagi.
Á stigapalli framan við vinnustofuna er skolvaskur, þar var áður snyrting og eru frárennslislagnir til staðar ef vilji væri fyrir hendi að setja aftur upp snyrtingu.

Herbergi 1: Á efstu hæð er mjög rúmgott herbergi með glugga sem vísar upp Flókagötuna, linoleumdúkur á gólfi. Líkt og á hæðinni fyrir neðan er skolvaskur á stigapallinum framan við herbergið og þar væri einnig möguleiki að koma fyrir snyrtingu. Linoleumdúkur er á stigapallinum og stiganum og þakgluggi sem veitir fallega birtu.

Gengið um steyptan stiga niður í kjallara hússins. Við stigann og undir stiganum þegar niður er komið eru góðir skápar og hirslur.
Herbergi 2: Rúmgott hjónaherbergi innst á ganginum, flísar á gólfi, útgengi á lóðina um stiga upp í garðinn. Baðherbergi: Inn af hjónaherberginu er baðherbergi, flísar á veggjum og gólfi, flísalögð sturta með glerhlið, upphengt salerni, veggskápur, handklæðaofn.
Herbergi 3: Gott herbergi, flísar á gólfi.
Herbergi 4: Einnig mjög gott herbergi, flísar á gólfi. 
Fallegur steyptur veggur setur mikinn svip á ganginn, innfelld lýsing er í loftum. 
Inntaksrými/þvottahús: Er staðsett við stigapall á neðstu hæð, hillur og skápar á sitthvora höndina, tengi fyrir vélar, góð geymsla innst í rýminu, steypt gólf, gluggar.

Stór og glæsilegur garður er umhverfis húsið með afar fallegum og fjölbreyttum tjágróðri. Steyptur garðveggur sem snýr að Flókagötu og Rauðarárstíg sem hannaður var af Kurt og Pí. Hiti er í stéttum frá aðalinngangi að garðhliði.
Húsið stendur á um 650 fermetra lóð. Í garðinum eru nokkur, allt að 80 ára, hraust og falleg tré. Þar má nefna hlyn, álm og reynitré. Núverandi eigendur endurskipulögðu garðinn um aldamótin. Þá voru gróðursett ýmis eðaltré sem hafa þroskast og stækkað. Þar má nefna mjög fallega 3-4 metra háa eik, álíka háan blóðhlyn, kashmírreyni og háan ask. Einnig eru ólík yrki af birki. Mikið er af sírenum og smærri runnum og trjám svo sem einir og töfratré. Í garðinum er einnig mjög falleg bleik lyngrós og sterkt og blómríkt kirsuberjatré. Þá er einnig steinagarður í japönskum anda og fjölmörg blómabeð svo garðurinn er mjög fallegur frá vori til hausts. 

Viðhald/endurbætur:
1998:
- Húsið drenað
 - Gluggar endurnýjaðir í öllu húsinu fyrir utan vinnustofuglugga í norður og glugga í þvottahúsi.
 -Marmoleum línóleum gólfdúkur frá  Kjaran settur á jarðhæð og stiga.
 -Vinnustofugólf flotað.
 - Steyptur garðveggur. Hönnun: Kurt og Pí (Ásmundur Hrafn Sturluson og Steinþór Kári Kárason).  
- Upphituð ný stétt frá aðalhurð og út að gangstétt.
2004
- Endurskipulagning á upphaflegu rými í kjallara og á jarðhæð.
 - Allar vatns- og rafmagnslagnir hússins endurnýjaðar.  
- Skipt um alla ofna. Í stað þeirra komu sandblásnir uppgerðirpottofnar auk handklæðaofna og hiti í gólfi í forstofu og í báðum baðherbergjum.
- Klóak undir húsi endurnýjað sem og frárennsli út í götu.
 - Dælubrunni komið fyrir í þvottahúsi sem tengist frárennsli.
2008:
- Sprunguviðgerðir á húsi. Að þeim loknum var húsið hraunað (grá svæði) og dregin hvít múrhúð á sléttu fletina.
- Þakrennur hússins endurnýjaðar. 
2021
- Bárujárnið á þakinu yfirfarið, málað, naglar slípaði og ryðvarðir.  
2024
- Vinnustofugluggi í norður gerður upp, en um er að ræða stóran upprunalegan glugga úr óregón furu. 
 
Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - miðborgin í göngufærir - Kjarvalsstaðir og Miklatún hinum megin við götuna.

Hér er um að ræða algjörlega einstaka fasteign miðsvæðis í borginni sem býður upp á margvíslega möguleika.

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is og/eða Ingibjörgu Þórðardóttur löggiltum fasteignasala í síma 864-8800 / ingibjorg@hibyli.is

Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone
Híbýli fasteignasala

Híbýli fasteignasala

Kringlunni 4-6 - 9 hæð, 103 Reykjavík
phone