Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Þórir Helgi Sigvaldason
Katla Hanna Steed
Jórunn Skúladóttir
Þórunn Pálsdóttir
Kristín Rós Magnadóttir
Tinna Björk Bryde
Vista
fjölbýlishús

Þorraholt 1B Þakíbúð

210 Garðabær

Tilboð

Fasteignanúmer

F2533224

Fasteignamat

129.100.000 kr.

Brunabótamat

109.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2025
svg
165,2 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta

Lýsing

Háborg og Þórunn Páls lgf. kynna með stolti  íbúð 402, glæsilega 4ra herbergja þakíbúð með stórbrotnu útsýni og 30 fm þaksvölum með heitum potti.  Óhindrað útsýni til vesturs, suðurs og norðurs. Sérmerkt stæði í bílageymslu  og 1,5 fm útigeymsla til viðbótar við birt flatarmál. Sjálf íbúðin er 157,9 fm og geymsla á jarðhæð er 7,3 fm.   Aukin lofthæð og frábært skipulag.  Tvö baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Stórt alrými og gólfsíðir gluggar eftir vesturhlið. Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf. s:773-6000 og thorunn@haborg.is.
Sérlega vegleg eign með aukinni lofthæð, sér loftræsikerfi fyrir íbúðina, gólfhita og sérmerktu stæði í bílageymslu með rafhleðslustöð.


Þorraholt 1 er nýtt  glæsilegt 49 íbúða álklætt fjölbýlishús hannað af Hjalta Brynjarssyni og teymi hjá Nordic Office of Architecture.  Húsið var byggt árið 2025 af  Reir verk  ehf.sem hefur getið sér gott orð fyrir vönduð vinnubrögð.

Komið er í rúmgóða forstofu með góðum skápum. Á vinstri hönd er gott herbergi með fataskápum.  Forstofan opnast í stórglæsilegt 66,9 fm alrými með stórbrotnu útsýni til vesturs, suðurs og norðurs,  að Snæfellsjökli, til sjávar og fjalla.  Sólarlagið hér svíkur engan.  
Eldhúsið er glæsilegt með innbyggðum  ísskáp og frystiskáp frá Siemens ásamt spanhelluborði í eyjunni sem er vegleg tæpir 2,5 m að lengd með góðu rými fyrir barstóla. Helluborðið er innfellt í borðplötu og eldhúsvaskur er undirlímdur.
Stórir gólfsíðir gluggar eru á stórum hluta vesturhliðarinnar þannig að útsýni er frábært úr alrýminu.  Það opnast á tveimur stöðum út á þaksvalirnar sem eru 30 fm  með sama magnaða útsýninu.  Þar er glænýr glæsilegur saltvatnspottur með 40 nuddstútum  og  1,5 fm útigeymsla  sem er til viðbótarvið birt flatarmál.  Innst í alrýminu er stúkuð af falleg sjónvarpsstofa.   Til vinstri  er glæsileg hjónasvíta með rúmgóðu baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga og góðum fataskápum eftir heilum vegg.  Við hliðina er þvottahús með opnanlegum glugga og góðum innréttingum fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Til hægri þegar komið er úr forstofu er annað herbergi með skápum  og við hlið þess rúmgott og fallegt baðherbergi með sturtu og opnanlegum glugga.
Vandað harðparket er á öllum rýmum nema flísar á baðherbergjum og þvottahúsi. Flísar á baðherbergjum eru í hólf og gólf.
Innréttingar eru vandaðar og sérsmíðaðar, sjálfvirk ljós eru inni í fataskápum og quartz steinn í borðplötum í eldhúsi og á baði.
Á jarðhæð fremst á gangi er 7,3 fm geymsla íbúðarinnar,  en þakíbúðin sjálf er 157.9 fm og birt flatarmál er samtals 165,2 fm.
Sérmerkt stæði í bílageymslu er á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjólageymslu.
Eignin   er sérlega vel staðsett, stutt frá stofnæðum og  fjölbreyttri verslun og þjónustu í Smáralind og í Garðabæ.  Nálægð við náttúruna í Heiðmörk og Vífilsstaðavöllur í bakgarðinum ásamt fleiri golfvöllum í nágrenninu.
Einstök þakíbúð í Garðabæ með mögnuðu útsýni.

Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is


 

img
Þórunn Pálsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Háborg fasteignasala
Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone
img

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. jún. 2025
86.350.000 kr.
183.000.000 kr.
20402 m²
8.970 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Háborg fasteignasala

Háborg fasteignasala

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík
phone

Þórunn Pálsdóttir

Grensásvegur 1, 108 Reykjavík