Lýsing
Um er að ræða 194,1 fm, 5–6 herbergja parhús á eftirsóttum útsýnisstað í suðurhlíðum Kópavogs. Húsið er á tveimur hæðum þar sem meginrými eru á efri hæð með útgengi á rúmgóða verönd með heitum potti. Eignin býður upp á mikla möguleika hvað varðar fjölgun herbergja og nýtingu rýma, auk þess sem risloft opnar á fjölbreyttan nýtingarmöguleika.
Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum þar sem eldhús, bæði baðherbergi og þvottahús hafa verið endurnýjuð.
Neðri hæð
Komið er inn í snyrtilega forstofu með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Á hæðinni eru þrjú svefnherbergi, öll með parketi, þar af rúmgott hjónaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt, flísalagt í hólf og gólf, með hornbaðkari, handklæðaofni og fallegri innréttingu.
Þvottahús er með góðri innréttingu þar sem tæki eru í þægilegri vinnuhæð.
Efri hæð
Á efri hæð er bjart og opið alrými með aukinni lofthæð þar sem eldhús, borðstofa og stofa mynda fallega heild. Útsýni til suðvesturs nýtur sín vel úr rýminu.
Eldhúsið er með dökkbæsaðri innréttingu og eyju, vel tækjum búið með tveimur ofnum (annar combi), helluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp.
Úr stofu er gengið út á rúmgóða verönd með skjólvegg og heitum potti. Þaðan er einnig aðgengi að bakgarði sem hentar vel t.d. fyrir gæludýr.
Á hæðinni er einnig annað baðherbergi, flísalagt með „walk-in“ sturtu, upphengdu salerni og fallegri innréttingu.
Auk þess er á hæðinni rúmgott aukarými/stofa sem nýtist vel sem sjónvarpsstofa eða vinnurými. Þar er möguleiki á að útbúa eitt til tvö svefnherbergi samkvæmt teikningum.
Risloft
Risloft (skráð 11 fm) býður upp á skemmtilega möguleika, t.d. sem sjónvarpsrými, vinnuaðstöðu eða svefnpláss. Opnanlegur þakgluggi er á rýminu.
Bílskúr og bílastæði
Rúmgóður bílskúr (36,8 fm) með lokaðri geymslu. Þar er rafmagn, hiti, vatn og rafknúinn hurðaopnari.
Tvö bílastæði eru framan við hús og góð gestastæði í nágrenninu. Hiti er í bílaplani.
Umhverfi og staðsetning
Eignin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Leikvellir eru í næsta nágrenni og stutt í leikskóla, grunnskóla og íþróttaaðstöðu. Mjög góð tenging er við helstu samgönguæðar höfuðborgarsvæðisins.
Annað
Samkvæmt eldri gögnum var þak endurnýjað árið 2020, þar sem skipt var um þakjárn, pappa og járn í þakkanti.
Mánaðarlegt gjald í lóðafélag Fagrahjalla 42–60 er 1.000 kr.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
---------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat