Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr.
Ásmundur Skeggjason
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Kristinn Tómasson viðsk.fr. MBA
Þórarinn Friðriksson
Vista
hæð

Ægisíða 66

107 Reykjavík

155.000.000 kr.

959.752 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2028243

Fasteignamat

145.300.000 kr.

Brunabótamat

81.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1956
svg
161,5 m²
svg
6 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 10. maí 2026 kl. 12:00 til 13:00

Opið hús: Ægisíða 66, 107 Reykjavík. Eignin verður sýnd sunnudaginn 10. maí 2026 milli kl. 12:00 og kl. 13:00.

Lýsing

EINSTÖK EIGN - EFRI SÉRHÆÐ MEÐ RÚMGÓÐUM STOFUM , GLÆSILEGU SJÁVARÚTSÝNI OG BÍLSKÚR - 107 REYKJAVÍK.

Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 161,5 fm. 

Um er að ræða efri sérhæð ásamt bílskúr á vinsælum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Húsið var byggt árið 1956 og er hæðin skráð 126,7 fm. og bílskúrinn var byggður árið 1961 og er hann skráður 34,8 fm. Gengið er upp ríkmannlegan og breiðan stigagang upp á hæðina með góðu skápaplássi. Stórt hol er við anddyri íbúðarinnar, en til vinstri er svefnálma með tveimur svefnherbergjum, parketlögðum gangi og baðherbergi. Eldhúsið er til hægri við holið en stofurnar þrjár eru samliggjandi, beint inn af holinu. Fallegt sjávarútsýni er úr stofunum til vesturs. Hringstigi er úr einni stofunni upp á rúmgott háaloftsherbergi. Útgangur er út á svalir úr stofunum. Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hitakompa. 

Forstofugangur/Hol: Stigagangurinn er teppalagður með miklu skápaplássi við anddyri íbúðarinnar. Holið er rúmgott með bókaskáp, parket á gólfi.  
Eldhús: Rúmgott með eldri innrétting með góðu skápaplássi, dúkflísar á gólfi og borðkrókur.
Stofur: Bjartar og rúmgóðar þrjár stofur með stórum gluggum og fallegu útsýni, útgangur út á suðvestur svalir, stigi er upp í risherbergi og parket á gólfum.
Svefnherbergin: Rúmgóð herbergi, stærra með korkflísum á gólfi og minna herbergið er parketlagt, en þar er hægt að komast upp í risgeymslu.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtutengi og gluggi.
Risherbergi: Nokkuð rúmgott með korklísum á gólfi og þakglugga.
Bílskúr: Skráður 35,9 fm. með hliðarinngönguhurð, bílskúrinn nær húsinu.

- Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
- Parket á íbúðinni er fiskibeinamynstri.
- Íbúðin er með upprunalegum innréttingum.

ATH! EINSTÖK EIGN Á VINSÆLUM OG FRIÐSÆLUM SJÁVARSTAÐ Í VESTURBÆNUM. STUTT Í VERSLANIR, SUNDLAUG; KAFFIHÚS OG ÝMSA þJÓNUSTU, ÁSAMT EINSTÖKUM GÖNGULEIÐUM VIÐ SJÁVARSÍÐUNA.

 Allar nánari uppl. og skoðun veitir: Jóhann Friðgeir, lgf  GSM: 896-3038  e-mail: johann@hofdi.is

img
Jóhann Friðgeir Valdimarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Höfði fasteignasala
Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone
img

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
Höfði  fasteignasala

Höfði fasteignasala

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík
phone

Jóhann Friðgeir Valdimarsson

Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík