Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Nönnugata 1

101 Reykjavík

69.500.000 kr.

924.202 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2007624

Fasteignamat

64.900.000 kr.

Brunabótamat

42.000.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1928
svg
75,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 16. maí 2026 kl. 14:15 til 14:45

Opið hús: Nönnugata 1, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 201. Eignin verður sýnd laugardaginn 16. maí 2026 milli kl. 14:15 og kl. 14:45. *** Verið velkomin. Ragnar s: 844-6516 ***

Lýsing

Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Einstaklega falleg og björt 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í litlu fjórbýlishúsi að Nönnugötu 1 í Reykjavík. Eignin er skráð 75,2 fm. og skiptist í anddyri/hol, rúmgott svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, borðstofu og stofu. Á jarðhæð húss er sameiginleg þvottaaðstaða ásamt sérgeymslu.
Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á mjög vinsælum stað í Reykjavík. Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir þá sem vilja vera nálægt bæjarlífi miðbæjarins er vandfundin. Göngufæri er í flesta þjónustu. Nálægð við góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn á forstofu/gang sem sameinar flest rými íbúðarinnar. Fallegar gegnheilar gólffjalir á gólfi og snotur sjónsteypuveggur stúkar af alrýmið.
Eldhús: Smekkleg innrétting búin efri og neðri skápum og hirslum, bakaraofni, helluborði, gufugleypi, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp, vask með útdraganlegum barka og dökkri borðplötu á borði. Gluggi með opnanlegu fagi. Fallegar gegnheilar gólffjalir á gólfi. 
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru í stóru og björtu rými með gegnheilum gólffjölum á gólfi. Auðvelt væri að búa til eitt auka herbergi í stofu með léttum vegg.
Svefnherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi með loftháum fjórföldum fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt á veggjum og útbúið snotri hvítri innréttingu með handlaug og neðri skápum, upphengdu salerni, handklæðaofni, flísalagðri sturtu og gluggi með opnanlegu fagi.
Sérgeymsla/þvottaherbergi: Eigninni fylgir geymsla ásamt því að sameiginlegt þvottaherbergi með tengi fyrir þvottavél er á jarðhæð sameignar.
Garður/Lóð: Góð aðkoma að húsinu og virkar eignin og umhverfið mjög snyrtileg.

Um er að ræða fallega og vel skipulagða hæð á mjög vinsælum stað í miðborg Reykjavíkur þar sem  góðar samgönguæðar tengja miðbæinn við alla staði borgarinnar og stutt er í alla helstu þjónustu. Einnig er göngufæri í leik- og grunnskóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í S: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is 

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Gjaldskrá birt með fyrirvara.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. jan. 2021
40.500.000 kr.
46.100.000 kr.
75.2 m²
613.032 kr.
22. nóv. 2019
39.900.000 kr.
42.500.000 kr.
75.2 m²
565.160 kr.
30. jan. 2017
30.250.000 kr.
32.900.000 kr.
66.3 m²
496.229 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone