Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Finnbogi Hilmarsson
Gunnlaugur A. Björnsson
Brynjólfur Snorrason
Ragnar Þorgeirsson
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Ásdís Írena Sigurðardóttir
Elsa Björg Þórólfsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Langholtsvegur 79

104 Reykjavík

53.900.000 kr.

887.974 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2020359

Fasteignamat

53.900.000 kr.

Brunabótamat

32.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1949
svg
60,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Heimili fasteignasala kynnir í einkasölu Langholtsveg 79. Mikið endurnýjaða 2ja herbergja íbúð með sérinngangi í kjallara í þríbýlishúsi á góðum stað miðsvæðis í borginni. Frábær fyrsta eign. 

** Bókið skoðun HÉR **

Lýsing eignar:
Komið er um sérinngang í snyrtilega flísalagða forstofu/anddyri. Þaðan er gengið inn í íbúðina, inn í rúmgott hol með innbyggðum fataskáp. Eldhús er bjart og snyrtilegt með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi. Helluborð, háfur. Innbyggð uppþvottavél, bakarofn og örbylgjuofn. Flísar á veggjum. Gluggi til suðausturs. Baðherbergi er lagt fibo-trespo plötum á veggjum, flísar á gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, nett skúffuinnrétting undir handlaug ásamt góðum skáp. Handklæðaofn, gluggi. Stofa er björt og rúmgóð með gluggum til suðausturs og austurs. Inn af stofu er gott svefnherbergi með glugga til austurs. Á gólfum er harðparket, en á baðherbergi og í anddyri eru flísar. Frá anddyri er innangengt í sér geymslu íbúðar sem er í dag nýtt sem vinnuaðstaða, og að sameiginlegu þvottahúsi hússins. Sameiginlegur skjólgóður garður í góðri rækt er umhverfis húsið, þar hefur verið reistur sameiginlegur skúr sem nýtist m.a fyrir hjól og sameiginlegt grill. 

Endurbætur síðustu ára m.a : 
2015 Skólplagnir endurnýjaðar. Sameiginlegur geymsluskúr reistur á lóð.
2015 Múrviðgerðir á húsi og tröppum niður í sameign. Baðherbergi endurnýjað. Nýjar gólfflísar, baðkar, salerni. Fibo-trespo plötur settar á veggi.
2016 Ofnar yfirfarnir og settir Danfoss kranar á alla ofna. Nýr þrýstijafnari fyrir íbúð í kjallara, nýr handklæðaofn á baðherbergi.
2017-2018 Gluggar, gler og opnanleg fög í íbúð. Raflagnir og rafmagnstafla. Hurðar og hurðakarmar, Parketlagt. Eldhúsinnrétting og raftæki í eldhúsi. Baðinnrétting og handlaug. Þak og tréverk málað.  Þvottahúsi málað gólf/veggir.
2021 þakrenna endurnýjuð.
2025 Gluggar, gler og opnanleg fög í sameign og á efri hæðum.

Hér er um að ræða frábæra fyrstu eign á góðum stað miðsvæðis, örstutt í strætó og stofnbrautir.  Grunnskóli og leikskóli í göngufæri.  Þjónustukjarni í Álfheimum m.a bakarí og ísbúð í göngufæri ásamt náttúruparadís í Laugardalnum þar sem má njóta útivistar eða nýta sér líkamsrækt og sundlaugar.  Nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind löggiltur fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

img
Sigríður Lind Eyglóardóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Heimili fasteignasala
Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone
img

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. nóv. 2023
41.700.000 kr.
47.000.000 kr.
60.7 m²
774.300 kr.
17. jan. 2019
29.900.000 kr.
31.100.000 kr.
60.7 m²
512.356 kr.
16. apr. 2015
17.350.000 kr.
17.500.000 kr.
60.7 m²
288.303 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Heimili fasteignasala

Heimili fasteignasala

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík
phone

Sigríður Lind Eyglóardóttir

Grensásvegur 3, 2. hæð, 108 Reykjavík