Opið hús: Hörðaland 4, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 02. Eignin verður sýnd laugardaginn 30. maí 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.
Lýsing
Nánari lýsing:
Hol: komið er inn í rúmgott hol með innbyggðum fataskáp.
Stofa/borðstofa: er björt og falleg með miklu útsýni til suðurs. Úr stofu er gengið út á stórar suður svalir.
Eldhús: er opið við borðstofu og stofu. Nýlega endurhannað og endurnýjað af arkitekt á afar smekklegan máta. Ofn í vinnuhæð, helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Þvottahús: inn af eldhúsi er þvottahús/búr með nettri innréttingu og stæði fyrir þvottavél og þurrkara og/eða skolvask.
Svefnherbergi I: rúmgott herbergi með góðu skápaplássi yfir heilan vegg.
Svefnherbergi II: rúmgott herbergi með innbyggðum fataskáp. ( möguleiki að bæta við 3ja svefnherbergi )
Baðherbergi: er nýlega endurnýjað. Flísalagt bæði gólf og veggir. Falleg viðarinnrétting. Walk-in sturta, upphengt salerni, handklæðaofn.
Á allri íbúðinni er viðarparket utan baðherbergi og þvottahús sem er flísalagt.
Sameign: hjóla og vagnageymsla ásamt rúmgóðu þvottahúsi. Geymsla íbúðar er í kjallara.
Viðhald og framkvæmdir íbúð:
2019 Opnað milli eldhúss og stofu og ný eldhúsinnrétting. Þvottahús/búr útbúið inn af eldhúsi. Dregið í allt rafmagn og tafla endurnýjuð. Viðarparket á öllum gólfum frá Birgisson. Innfelldur forstofuskápur í holi.
2022 Baðherbergi endurnýjað, flísalagt, upphengt salerni, walk-in sturta. Spegill með baklýsingu og hitaþræði. Innrétting á vegg og undir handlaug. Handklæðaofn.
Viðhald og framkvæmdir hús og sameign:
2013-2018 Öllum gluggum í húsinu skipt út í áföngum, steypuviðgerðir og húsið málað.
2019 Dyrasími endurnýjaður.
2021-2022 Loftstokkahreinsun í öllum íbúðum. Lagnir myndaðar.
2023 Ástandsskoðun og skýrsla unnin.
2024 Allar lagnir undir húsinu endurnýjaðar ástamt dreni og frárennsli af þaki. Stéttar beggja vegna húss endurnýjaðar og settur hiti í stétt inngangsmegin.
2025 Teppi endurnýjað á stigagangi. þvottavélar settar á upphækkun og öll sameign máluð.
2026 Framkvæmdir eru í gangi á suðurhlið hússins. Múrviðgerðir á svölum, vatnshalli á svalagólf og tenging við niðurfall ásamt nýrri útidyrahurð út í garð og málun suðurhliðlar hússins. Framkvæmd er að fullu fjármögnuð.
Hér er um að ræða virkilega fallega og mikið endurnýjaða útsýnisíbúð á frábærum stað við Fossvoginn. Húsið hefur fengið gott viðhald gegnum árin og sameign öll snyrtileg. Stutt er í skóla, íþróttir, útivist í Fossvogsdal og alla helstu þjónustu eins og verslunarkjarnann í Grímsbæ og Kringlunni. Vel er haldið utan um bæði húsfélög hússins.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind löggiltur fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.