Opið hús: Rökkvatjörn 2, 113 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 8. júlí 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð. Íbúðin er skráð 74,8 fm., þar af er góð geymsla í sameign 5,9 fm. Eigninni fylgir vel staðsett stæði í bílakjallara. Tengi fyrir hleðslustöð er í stæðinu. Heimilt er að byggja pall við íbúðina.
Húsið var byggt sem hluti af verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði ætlað fyrstu kaupendum og kaupendum undir 40 ára. Um eignirnar gilda ákveðnir skilmálar og kvaðir er varða verðlagningu sem og endursölu. Fyrstu 12 vikurnar sem eignin er til sölu hafa þeir forgang sem eru undir 40 ára aldri og eru fyrstu kaupendur. Ef tveir eða fleiri einstaklingar sækjast eftir íbúðinni, þá ganga þeir fyrir sem eru að kaupa sínu fyrstu íbúð en að öðru leyti ræður hlutkesti. Hafi ekki borist tilboð í íbúðina frá einstaklingi í framangreindum forgangshóp innan tólf vikna frá auglýsingu í fjölmiðlum (þ.m.t. vefmiðla) er heimilt að selja hana á almennum markaði.
Nánari lýsing:
Eignin er með vönduðu harðparketi (QuickStep) og innréttingum frá Egger.
Forstofa er parketlögð og með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með skáp undir handlaug, upphengdu salerni, speglaskáp og sturtu. Glerþil er í sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Í eldhúsi er innrétting með eldhústækjum frá Rafha; spanhelluborði, viftu og bakaraofni. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni.
Tvö svefnherbergi, bæði parketlögð. Annað er 11 fm og er það með fataskáp (nú notað sem barnaherbergi) og hitt herbergið er 8,9 fm.
Húsið er Svansvottað en í því felst að áhersla er lögð á vistvænni byggingarefni. Hagstæðari lánakjör fást hjá flestum fjármálastofnunum á byggingum sem eru Svansvottaðar.
Húsið er með miðlægu loftræstikerfi sem tryggir betri loftræstingu og orkunýtingu. Næg bílastæði eru við húsið.
Þettta er falleg og björt íbúð í mjög nýlegu húsi. Hún er staðsett í fjölskylduvænu hverfi í örstuttu göngufæri við útivistarsvæði. Öll helsta þjónusta er í næsta nágrennni.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lfs. í síma 8633445 og netfanginu marta@sunnafast.is.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald er tekið fyrir kaupsamninga, veðskuldabréf, veðleyfi, umboð o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.