Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Sigríður Kjartansdóttir
Vista
hæð

Laugateigur 5

105 Reykjavík

124.500.000 kr.

823.958 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019113

Fasteignamat

103.350.000 kr.

Brunabótamat

73.520.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
151,1 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu nánast algjörlega endurnýjaða 5 herbergja 124,4 fermetra efri hæð í ný-steinuðu fjórbýlishúsi auk 26,7 fermetra bílskúrs á þessum eftirsótta stað við Laugateig í Reykjavík. 

Eignin hefur verið mjög mikið endurnýjuð á sl. árum:
- Húsið að utan múrviðgert og steinað árið 2021
- Allt gler og gluggar í íbúðinni auk svalahurðar á íbúð endurnýjað árið 2021
- Allt gler og gluggar í sameign hússins endurnýjað árið 2021
- Klóaklagnir frá húsvegg og út í götu og lagðar drenlagnir í kringum húsið árið 2023. Klóaklagnir undir húsi eru úr pottjárni.
- Allar raflagnir og neysluvatnslagnir í íbúðinni endurnýjaðar árið 2024 og einnig settir upp þráðlausir rofar fyrir ljós
- Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð árið 2025
- Baðherbergi endurnýjað árið 2023
- Gólfefni og innihurðir endurnýjaðar árið 2024
- Sett upp loftkælikerfi í loft hvers rýmis til hitunar og kælingar árið 2023 og tengt varmaskipti
- Lagður nýr þakpappi á bílskúrsþak og ál-áfellur á þakkanta árið 2025

Lýsing eignar:

Forstofa / hol, stórt, parketlagt og bjart með útgengi um nýja svalahurð á svalir til suðvesturs.
Barnaherbergi I, parketlagt og stórt með gluggum í tvær áttir.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott.
Barnaherbergi III, parketlagt og rúmgott.
Hjónaherbergi, stórt, parketlagt og með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, extra stórt baðkar með sturtuhaus úr lofti og tölvustýrðri sturtu. Innrétting með vaski, handklæðaofn og vegghengt wc. 
Stofa, parketlögð og rúmgóð.
Eldhús, stórt, parketlagt og bjart með gluggum í þrjár áttir og mjög stórri borðaðstöðu.  Fallegar nýleg og mikil grá innrétting með spanhelluborði, háfi sem blæs út fyrir hús, uppþvottavél og gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp. 

Bílskúr, sem er 26,7 fermetrar að stærð, er með nýjum raflögnum og töflu, nýjum neysluvatnslögnum, mikilli lofthæð og nýlegum hitablásara.  Rafhleðslustöð er við bílastæði íbúðarinnar fyrir framan bílskúrinn. Nýr tjörupappi er á þaki bílskúrs og ál-áfellur á þakköntum.

Í kjallara hússins eru:
Sérgeymsla, 6,9 fermetrar að stærð með góðri lofthæð og gluggum. 
Sameiginlegt þvottaherbergi, mjög rúmgott, gluggar og niðurföll í gólfi.

Húsið að utan lítur mjög vel út, múrviðgert og endursteinað nýlega. Þakjárn lítur vel út og er um 12 ára gamalt.

Lóðin er nýlega endurgerð með malarborinni stórri innkeyrslu, hellulagðri stétt og tyrfðum flötum.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað við Laugateig í Reykjavík þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, íþróttasvæði, fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði auk þess sem stutt er í miðborgina.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
7. feb. 2019
55.050.000 kr.
52.000.000 kr.
154 m²
337.662 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone