Opið hús: Háaleitisbraut 109, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 9. ágúst 2026 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.
Lýsing
Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna. 105,4 fermetra íbúð við Háaleitistbraut 109. Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð við Háaleitisbraut 109 til sölu.
Húsið Háaleitisbraut 109 – 111 var teiknað af Sigvalda Thordarson og er eitt af síðustu húsunum sem hann hannaði.
Íbúðin er á 1. hæð og stigagangurinn er hringlaga, algjör hönnunarperla. Örfáar tröppur upp stigann. Rúmgott stofurými. Stofa og borðstofa með útgengi á rúmgóðar suður svalir. Parketið hefur verið pússað. Svefnálma/gangur með þremur svefnherbergjum, baðherbergi og sér þvottahúsi. Íbúðin er alls 105,4 fm, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 5,4 fm.
Frábær staðsetning, stutt í alla þjónustu, Álftamýrarskóli og tveir leikskólar eru innan hverfis. Barnvænt hverfi. Víkingur er með öflugt íþróttastarf í Safamýri. Verslunarmiðstöðin Miðbær er í næsta nágrenni en þar má finna ísbúð og Mosfellsbakarí.
Leikvöllur og fótboltavöllur fyrir aftan blokkina. Góðar samgöngur á svæðinu. Kringlan, Skeifan og Laugardalur eru í göngufæri.
Inngangur: Komið er inn í hol með fataskáp.
Eldhús er með ljósri innréttingu, gluggi og gólfefni er flotað.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með stórum gluggum og útgengi á stórar svalir sem eru meðfram allri suðurhlið íbúðarinnar.
Parket á gólfi og ljós viðarpanell í lofti. Stórt og bjart rými.
Þrjú svefnherbergi, hjónaherbergi með innbyggðum skáp og sérstöku fataherbergi, tvö barnaherbergi, annað mjög rúmgott.
Baðherbergi með ljósum flísum og baðkari með sturtuhaus.
Þvottahús endurnýjað með flísum. Pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla í kjallara sem og tvær hjólageymslur, gengið er inn í aðra úr anddyri blokkarinnar en inn í hina frá garðinum.
Þá er geymsluskápur sem íbúðin á staðsettur rétt fyrir innan inngang blokkarinnar.
Endurbætur:
Séreign: Þvottahús tekið í gegn 2020 - Svalir filtaðar 2021 - Gler í stofu endurnýjað 2021, allt nema svalahurð og opnanleg fög. Sett sólvarnargler frá Íspan. Dregið nýtt rafmagn að mestu.
Sameign:
Árið 2025 var framkvæmd múrviðgerð á austurhlið hússins, klæðning tekin af og málað í Sigvaldalitum.
Skipt var um glugga árið 2021. Þá voru allir gluggar í svefnherbergjum endurnýjaðir ásamt eldhúsglugga. Sama ár var norðurhlið hússins einnig máluð.
Ný eldvarnarhurð í inngang íbúðar var sett 2022 og nýr dyrasími var settur 2021.
2011-2012 var farið í miklar viðgerðir á blokkinni,þá var gert við sprungur, múrskemmdir lagaðar, ryðguð járn viðgerð, svalagólf löguð og sílan borið,
blokkin máluð, bílskúrshurðir hreinsaðar og málaðar o.fl.
Blokkin hefur almennt fengið viðhald eftir þörfum.
Nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.