Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
parhús

Völuskarð 34

221 Hafnarfjörður

214.900.000 kr.

927.893 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2504703

Fasteignamat

152.900.000 kr.

Brunabótamat

151.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2022
svg
231,6 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vandað og nýlega byggt parhús í sérflokki, staðsett í efstu götu í Skarðshlíðinni Hafnarfirði.
Húsið er á einni hæð með innbyggðum bílskúr.

* Glæsilegt útsýni
* Sauna, saltvatnspottur, og sólpallur 
* Sérsmíðaðar innréttingar, bæsaður Álmur
* Lýsing er hönnuð af Lumex

* Aukin lofthæð og loftræstikerfi.
* Snjallkerfi frá free@home
* Rafmagnsgluggatjöld
* 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. HMS er 231,60 m2. Í öllu húsinu er aukin lofthæð ( 3 metrar ) en í stofunni er hún 3,8m.

Eignin skiptist í forstofu, rúmgott alrými með eldhúsi, stofu, borðstofu, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er flísalögð með fataskápum.
Í eldhúsinu er glæsileg eldhúseyja með Kvartz-steini, tvöföldum ískáp, heimilistæki frá Miele, tvöföldum bakarofni, annar þeirra combi, uppþvottavél, vínkæli og innfelldum tækjaskáp. 
Eldhús er opið með stofum, mikil lofthæð, klæðning í lofti, innfelld lýsing og fallegur frágangur setur mikinn karakter í rýmið. Útgengt út á sólpall um rennihurð.
Sjónvarpshol er flísalagt með innbyggðu hljóðkerfi.
Hjónasvíta er flísalögð með gluggum á tvo vegu. Útgengt út á pall. Rúmgóður fataskápur, Baðherbergi þar innaf.
Baðherbergin eru tvö, bæði með walk-in sturtum, rúmgóðum innréttingum með marmarasteini á borðum og innbyggð blöndunartæki
Önnur þrjú svefnherbergi eru rúmgóð með fataskápum og flísum á gólfi.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu með stein á borði, plássi fyrir tækin, góðu skápaplássi og skolvask.
Bílskúrinn er innangengur í gegnum þvottahús, með góðu geymsluplássi, skráður 34,80 m2 samkv. HMS.

Útisvæðið inniheldur meðal annars Sauna, saltvatnspott, geymsluskúr og sólpall með skjólveggjum.
Fyrir framan húsið er rúmgott steypt bílaplan með snjóbræðslu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
30. sep. 2021
9.770.000 kr.
89.000.000 kr.
231.6 m²
384.283 kr.
1. sep. 2021
9.770.000 kr.
20.000.000 kr.
231.6 m²
86.356 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík