Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Svavar Friðriksson
Vista
fjölbýlishús

Hafnarbraut 12F

200 Kópavogur

78.900.000 kr.

834.921 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2510865

Fasteignamat

79.400.000 kr.

Brunabótamat

61.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2021
svg
94,5 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Hjólastólaaðgengi
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
svg
Laus strax
Opið hús: 3. september 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Hafnarbraut 12F , 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 214. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00. *** Verið velkomin. Ragnar S: 844-51 ***

Lýsing

Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Nýleg og glæsileg 3ja herbergja búð merkt 214, í nýlegu fjölbýlishúsi að Hafnarbraut 12F, í vesturbæ Kópavogs. Skráð stærð eignar er 94,5 fm. og þar af geymsla 7,6 fm. Eignin skiptist í lokað anddyri, eldhús, borðstofu, stofu, rúmgott hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign. Eigninni fylgir svalir og sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu og lyfta fer alla leið niður í bílakjallara. Búið er að setja upp hleðslustöð við stæði í bílakjallara. Öll hönnun hússins og íbúðar er sérlega falleg og íbúðin einkar vel skipulögð. Má nefna að íbúðin er horníbúð og gluggar íbúðarinnar eru til tveggja átta sem gera hana sérlega bjarta og fallega. Fallegar samræmdar innréttingar með flæðandi borðplata á borðum eldhússeyju og gólfefni er harðparket og flísar. Íbúðin er með svölum sem snúa að sameiginlegum garði. Á lóðinni er stór og glæsilegur garður, göngustígar og opin svæði. Milli bygginga og nærliggjandi strandar við Fossvoginn er grænt útivistarsvæði. Göngu- og hjólastígar líða hjá og tengjast m.a. áætlaðri nýrri göngu-og borgarlínubrú milli Kópavogs og Reykjavíkur. 
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Komið er inn í anddyri með fallegu flæðandi harðparketi á gólfi Frá anddyri er gengt í flest rými eignarinnar.
Eldhús: Eldhúsið er vel útbúið með fallegri sprautulakkaðri innréttingu með hvítri og silkimattri áferð. Gott skápapláss, innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél og AEG spanhelluborð með háf yfir. AEG ofn í vinnuhæð og rúmgott pláss fyrir barstóla við eyjuna. Allar skúffur eru með mjúklokun og höldur eru almennt stállitaðar en á einstaka skápum er þrýstiopnun. Í eldhúsinu er gluggi með opnanlegu fagi.
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru í björtu samliggjandi alrými. Flæðandi harðparket frá Birgisson er á gólfi og frá stofu er gengið út á svalir.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott svefnherbergi með fjórföldum háum fataskápum og harðparketi á gólfi. 
Svefnherbergi: Að auki hjónaherbergis er svefnherbergi með háum tvöföldum fataskáp og harðparketi á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít sprautulökkuð innrétting með hvítri plötu á borði, ljúflokun og stórum speglaskáp. Upphengt salerni, handklæðaofn og stór flísalögð "walk in" sturta. Tenglar eru fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir eigninni ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Bílageymsla: Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu. Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla við sérmerkt stæði í bílakjallara.

Þetta er eftirsótt og vinsæl staðsetning í vetsurbæ Kópavogs þar sem mikið er til staðar í hverfinu: Spennandi hjóla-, hlaupa- og göngustígar við sjávarsíðuna, göngufærri við Sky lagoon böðin, góðar samgönguleiðir auk þess sem ný brú frá Kársnesi yfir í miðbæ Reykjavíkur er fyrirhuguð. Grunnskóli og leikskólar eru í göngufjarlægð. Svæðið í heild mun einkennast af nýjum íbúðum í bland við atvinnubyggð. Bryggjusvæðið verður endurnýjað og gagnger uppbygging mun eiga sér stað í hverfinu.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar fasteignasali í s: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald kr.  3.800.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. ágú. 2021
5.230.000 kr.
56.900.000 kr.
94.5 m²
602.116 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone