Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1982
svg
248,8 m²
svg
9 herb.
svg
3 baðherb.
svg
7 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni

Lýsing

Rúmgott og fjölskylduvænt einbýlishús á þremur hæðum með aukaíbúð í kjallara og bílskúr sem stendur í  rólegri  botlangagötu við Klyfjasel 24 í Seljahverfinu. Aukaíbúðin er í útleigu. Bílskúr er skv. teikningum innangengur en vegna íbúðarinnar hefur þeim inngangi verið lokað. Fimm rúmgóð herbergi eru í húsinu. Eldhús hefur verið tekið niður vegna breytinga og því miklir möguleikar fyrir kaupendur að gera eldhúsið að sínu. 

Eignin er skáð skv. Þjóðskrá Íslands alls 248,8 fm. og þar af er bílskúr 32,9 fm 

Nánari lýsing eignar:
Miðhæð, þar er gengið inn á aðalhæð hússins. 
Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi, kommóðu, hita í gólfi og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgott og opið rými með parketi á gólfi. Léttur veggur er á milli borðstofu og eldhúsins og býður því upp á að opna rýmið frekar. Útgengt er út stofunni út á sólpall með heitum potti. 
Eldhús er í dag ekki með neinni innréttingu þar sem eldri innrétting hefur verið tekin niður og býður því upp á að kaupandi gerir eldhúsið nákvæmlega eftir sínum þörfum.  
Þvottahús/búr er inn af eldhúsi, vinnuborð með vask og steinn á gólfi. Útgengt er úr þvottahúsinu út á pall á hlið hússins.
Svefnherbergi rúmgott með parketi á gólfi. 

Efsta hæð
Svefnherbergi 2 með parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr herberginu með fallegu útsýni. Úr herberginu er opið upp á kalt mögulegt geymsluloft. 
Svefnherbergi 3 með parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 með parket á gólfi. 
Svefnherbergi 5 með parket á gólfi. 
Geymsla/vinnnurými með þakglugga og parket á gólfi. 
Baðherbergi mjög rúmgott með hornbaðkari, innrétting, gluggi, tengi fyrir þvottavélar og flísar á veggjum og vínil dúka flísar á gólfi. 
Gangur með parketi á gólfi. 

Aukaíbúð á jarðhæð
Íbúðaraðstaðan á jarðhæð skiptist í stofu/svefnherbergi, eldhús þar sem gert er ráð fyrir þvottavél í innréttingu, og baðherbergi með sturtu.

Bílskúr er innangengur skv. teikningum en vegna auka íbúðar í kjallara er sá inngangur lokaður í dag. Bílskúrinn er með rafmagni, heitt/kalt vatn og upphitaður. 

Pallur er við húsið og er útgengt út á hann í stofunni.
Útigeymsla er á palli við inngang hússins. 
Næg bílastæði eru við húsið. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
16. maí. 2014
43.850.000 kr.
47.500.000 kr.
248.8 m²
190.916 kr.
24. mar. 2007
36.560.000 kr.
42.000.000 kr.
248.8 m²
168.810 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir

Vegmúla 4, 108 Reykjavík