Upplýsingar
Byggt 1964
285,5 m²
6 herb.
1 baðherb.
5 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Útsýni
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Þórunnarstræti 108 B
Um er að ræða 6 herbergja efri hæð í tvíbýli ásamt leigueiningu í kjallara og stakstæðan tvöfaldan bílskúr, miðsvæðis á Akureyri í næsta nágrenni við Sundlaug Akureyrar. Eignin er samtals 285,5 fm. þar af er bílskúr 43,8 fm. og rými í kjallara 99.5 fm..
-- Þórunnarstræti 108 A er einnig til sölu og kemur til greina hjá eiganda að selja allt húsið í heild sinni. Fyrir frekari upplýsingar hafið samband á skrifstofu --
Eignin skiptist í anddyri og stigauppgöngu, gang, 5 svefnherbergi, stofu, baðherbergi og eldhús auk þvottahús í kjallara. Íbúð í kjallara skiptist í opið anddyri og gang, eldhús, baðherbergi, stofu og svefnherbergi.
Forstofa er með dúk á gólfi, opnu fatahengi og úr forstofu er stigi niður í þvottahús.
Steyptur stigi með dúk á gólfi er úr forstofu og á aðalhæð.
Gangur er nokkuð opinn, með dúk á gólfi og tengir öll rými íbúðarinnar. Lúga er á gangi fyrir framan baðherbergi upp á loft.
Svefnherbergi eru fimm, öll með dúk á gólfi og öll með skápum fyrir utan eitt þeirra og úr einu þeirra er útgengt út á svalir til suðurs og vesturs. Gerð voru tvö svefnherbergi úr stofurými á teikningum og stofa er í dag í suðvesturhorni íbúðar sem er skráð sem herbergi á teikningar.
Baðherbergi var endurnýjað fyrir um 20 árum, það er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtutækjum, upphengt salerni, innrétting í kringum vask og opnanlegt fag í glugga. Skápar eru fyrir framan hjónaherbergi og baðherbergi.
Stofa er björt með gluggum til tveggja átta og dúk á gólfi.
Eldhús er með dúk á gólfi, upprunalegri innréttingu og eldhúskrók, þá er búið að koma upp aðstöðu fyrir 45 cm. uppþvottavél. Lítið búr er inn af eldhúsi.
Þvottahús er í kjallara, þar er sér inngangur auk þess sem aðgengilegt er niður um forstofu.
Aukaíbúð er í þeim rýmum sem tilheyra efri hæð, í kjallara og er skráð á teikningum sem geymsla. Hún var endurnýjuð á árinum 2020 - 2021.
Gengið er inn um inngang í þvottahús í þá íbúð og hefur íbúðin þvottaaðstöðu í þessu sameiginlega rými.
Komið er inn í opið anddyri, á vinstri hönd er eldhús með hvítri innréttingu, stæði fyrir ísskáp og borðkrók. Baðherbergi er með sturtu, upphengdu salerni, speglaskáp fyrir ofan handlaug og opnanlegu fagi í glugga.
Stofa er á sama stað og á efri hæð eða í suðvesturhorni, gluggar til tveggja átta og parket á gólfi. Svefnherbergi er svo við endan á ganginum og þar er parket á gólfi.
Tvöfaldur bílskúr sem stendur á norðausturhorni lóðar fylgir efri hæð. Þar eru tvær innkeyrslu hurðir á vestur hlið og ein inngönguhurð á suðurhlið. Bílskúr þarnast múrviðgerða að utan. Leitt er í hann vatn og rafmagn og er hann upphitaður með ofnakerfi.
Annað:
-Ljósleiðari
-Húsið málað í kringum 2014
-Eirlagnir að hluta í ofnakerfi sem var endurnýjað fyrir ca. 20 árum.
-Endurnýjuð vatnsgrind fyrir efri hæð
-Drenað í kringum aldamótin 2000 að sögn eiganda
-Lóðin er sameiginleg en sérafnotafletir vegna bílastæða eru við húsið. Efri hæð á sem nemur breidd bílskúrs að vesturenda lóðar.
-Frábær staðsetning, stutt í leik og grunnskóla ásamt Sundlaug Akureyrar, Glerártorg og miðbæinn.
-Gluggar í húsinu orðnir lélegir
-Þak þarfnast orðið viðhalds
-Húsfélag er ekki virkt
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955