Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Gerplustræti 21

270 Mosfellsbær

124.900.000 kr.

850.817 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2500619

Fasteignamat

103.350.000 kr.

Brunabótamat

106.250.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
146,8 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 9. september 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Gerplustræti 21, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 02 04 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 9. september 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús miðvikudaginn 9.september frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **  

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Stórglæsileg og einstaklega vönduð 5 herbergja útsýnisendaíbúð með efstu hæð, ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Gerplustræti 21 í Mosfellsbæ. Íbúðin er skráð 146,8 m2 en þar af íbúð 134 m2 og geymsla 12,8 m2. Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, forstofu, tvö baðherbergi og stórt, bjart alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast fallega saman. Sérgeymsla er í kjallara og bílastæði í bílageymslu. Rúmgóðar svalir með svalalokun með glæsilegu útsýni. Fallegar innréttingar og gólfefni. Staðsetningin er einstaklega fjölskylduvæn. Leik- og grunnskóli er í næsta húsi og úr stofu og eldhúsi er horft yfir skólann. Jafnframt er stutt út í náttúruna og fallegar göngu- og útivistarleiðir liggja í allar áttir að helstu náttúruperlum bæjarins. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:

Forstofa er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Svefnherbergi nr. 4 er með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi nr. 1 er flísalagt frá gólfi upp í loft, með sturtu og handklæðaofni. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu.
Baðherbergi nr. 2 er flísalagt frá gólfi upp í loft, með sturtu og handklæðaofni. 
Eldhús er einstaklega vandað og vel útbúið með HTH-innréttingum. Þar eru tvær innbyggðar XXL uppþvottavélar, bakaraofn og örbylgjuofn, auk stórs og rúmgóðs tækjaskáps. Í eldhúsinu er einnig stór tvöfaldur ísskápur með klakavél sem getur fylgt eigninni. Sérsmíðaður bekkur tengir eldhús og borðstofu fallega saman og setur skemmtilegan svip á alrýmið.
Stofa og borðstofa eru inn af eldhúsi með gluggum á tveimur hliðum með glæsilegu útsýni sem gerir rýmið mjög bjart og skemmtilegt. Úr stofu og eldhúsi nýtur stórkostlegs útsýnis og þaðan er gengið út á fallegar, yfirbyggðar svalir með svalalokun sem snúa í há suður. Svalirnar mynda skjólgott og notalegt framhald af alrými íbúðarinnar.

Sérgeymsla er í kjallara hússins með mikill lofthæð og hillurekkum sem get fylgt. Geymslan er skráð 12,8 m2.
Íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðum bílakjallara. Í bílakjallara er aðstaða til að þvo bíla.

Annað: Húsið var fullbúið í lok árs 2020 og er því um að ræða nýlegt og viðhaldslítið hús. Eignin einkennist af vönduðum frágangi, mikilli birtu, 280 cm lofthæð og stórkostlegu útsýni. Innfelld lýsing er í alrými og dimmerar í stofu, gangi og eldhúsi. Gólfhiti er í allri íbúðinni með Bluetooth-hitastýringu í öllum rýmum og því eru engir hefðbundnir ofnar í svefnherbergjum. Stigahúsið er snyrtilegt og vandað með góðum flísum í anddyri og kjallara en teppi á stigahúsi. Utanhúss er fasteignin álklædd vandaðri klæðningu og því viðhaldslítil. Snjóbræðsla er undir gönguleiðum.

Verð kr. 124.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
17. nóv. 2020
28.650.000 kr.
69.900.000 kr.
146.8 m²
476.158 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ