Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ingólfur Geir Gissurarson
Heiðar Friðjónsson
Snorri Snorrason
Óskar H. Bjarnasen
Snorri Björn Sturluson
Elín Alfreðsdóttir
Gylfi Þór Gylfason
Vista
einbýlishús

Laugarásvegur 10

104 Reykjavík

430.000.000 kr.

911.790 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2019661

Fasteignamat

315.150.000 kr.

Brunabótamat

266.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1987
svg
471,6 m²
svg
10 herb.
svg
3 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynnir eitt glæilegasta einbýlishús landsins á frábærum stað í Laugardalnum. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og var engu til sparað við hönnun og byggingu þess. Alrými á fyrstu hæð er einstakt, opið rými að mestu leyti, með aukinni lofthæð, allt að 6 metrum. Glæsilegur hvítur marmari er á gólfum mikils hluta hússins. Lóðin er staðsett fyrir neðan götu og liggur beint við Laugardalinn.

SMELLA HÉR TIL AÐ SJÁ MYNDBAND

Bókið einkaskoðun hjá Óskari H. Bjarnasen fasteignasala / lögmanni í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er húsið skráð alls 471,6 m2 þar af er íbúðarhlutinn skráður 433 m2 og bílskúr 38,6 m2.

Nánari lýsing: 
Efri hæð: Gengið er inn á efri hæð hússins í íbúðarrými sem er skráð 202,1 m2. 
Komið er inn í rúmgótt anddyri með fallegum viðar fataskápum.
Inn af anddyri er gestasalerni.
Úr anddyri er svo gengið inn í glæsilegt móttökuhol með um 5,3 metra lofthæð og fjölda glugga á alla vegu sem hleypa birtu inn í rýmið. Úr móttökuholi er gengi inn í önnur rými 1. hæðar en hæðin er að mestu opið og bjart rými með glugga á þrjá vegu. 
Stofur á 1. hæð eru alls þrjár talsins auk borðstofu en teikningar gera ráð fyrir að hægt sé að stúka af hluta af hæðinni undir svefnherbergi, bókaherbergi eða önnur rými. Úr stofu er gengið út á stórar L-laga svalir meðfram húsinu sem snúa í suður og austur.
Eldhús er U-laga með ljósri viðarinnréttingu. Við eldhús er borðkrókur við útskot með gluggum.

Neðri hæð: Neðri hæð hússins er skráð 230,9 m2.
Gengið er niður glæsilegan stiga með hringlaga gluggum niður á neðri hæð. 
Þegar komið er niður stigan tekur við rúmgott hol sem leiðir inn í önnur rými neðri hæðar. Holið er dag nýtt undir sjónvarpsaðstöðu.
Frá holinu er komið í rúmgott fjölskyldurými með glugga á tvo vegu þaðan sem gengið er út á viðarverönd og fallegan skjólgóðan aflokaðan garð.
Á svefnherbergisgangi eru tvö svefnhergergi þ.e. stórt hjónaherbergi með fataskápum og barnaherbergi, og baðherbergi. Á teikningu eru svefnherbergin á svefnherbergisgangi þrjú en búið er að sameina tvö herbergjanna í eitt stórt hjónaherbergi. Útgengt er úr svefnherbergisgangi út í garð. 
Baðherbergi er rúmgott með tveimur gluggum. Flísar á gólfum og veggjum. Innrétting með tveimur vöskum, baðkar með sturtu.
Úr holi er einnig gengið inn gang með þvottahúsi og rúmgóðu svefnherbergi.
Stórt líkamsræktarrými/baðstofa með heitum potti, gufu og salerni. Gólfsíð rennihurð út í garð.
Bílskúr er tvöfaldur með gluggum, máluðu gólfi og innganghurð.

Lóðin, sem telur 836 m2, er afar falleg og skjólgóð með steyptum gangstígum, blómakerum og stoðveggjum umhverfis alla lóðina frá bílaplani. Bílaplanið er glæsilegt. 

Nánari upplýsingar veitir Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits:   
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

 

img
Óskar H. Bjarnasen
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Valhöll fasteignasala
Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone
img

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
Valhöll fasteignasala

Valhöll fasteignasala

Síðumúla 27, 108 Reykjavík
phone

Óskar H. Bjarnasen

Síðumúla 27, 108 Reykjavík