Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Ásvallagata 55

101 Reykjavík

59.900.000 kr.

1.050.877 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2002507

Fasteignamat

54.600.000 kr.

Brunabótamat

29.050.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1935
svg
57 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Laus strax
Opið hús: 22. september 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Ásvallagata 55, 101 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 22. september 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í fjögurra íbúða stigagangi við Ásvallagötu 55 á eftirsóttum stað í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Nálægt allri helstu þjónustu og í göngufjarlægð við iðandi mannlíf miðborgarinnar.

** Frábær fyrstu kaup
** Góð staðsetning
** Gott viðhald á húsi
** Laus við kaupsamning

Nánari upplýsingar veita:

Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 57m2, þar af geymslur 4,1m2 og 8,8m2.

Eignin skipist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og tvær geymslur.

Nánari lýsing:
Anddyri er með parket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi. 
Eldhús er með sjarmerandi eldri innréttingu, helluborði og ísskáp sem fylgir með kaupum. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað á smekklegan hátt með hvítri innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtuklefa. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Geymslur eru tvær sem fylgja eigninni í kjallara, önnur er 4,1m2 og hin er 8,8m2.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara hússins og getur þvottavél fylgt með kaupunum. 

Athygli er vakin á því að nokkrar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni þar sem eignin er tóm til þess að hugmyndir um nýtingu eignarinnar.

Ásvallagata 55, íbúð merkt 0201, er falleg og vel skipulögð eign í sögufrægu húsi á eftirsóttum stað í gamla Vesturbæ Reykjavíkur. Eignin er hluti af stærri íbúðakjarna sem afmarkast af Ásvallagötu, Hofsvallagötu, Hringbraut og Bræðraborgarstíg.
Húsalengjan er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt. Húsalengjan myndar hring utan um skjólgóðan og fallegan garð með leiktækjum, bekkjum og fallegum gróðri. Reykjavíkurborg sér um að halda garðinum við og er garðurinn öllum opinn á daginn, en á kvöldin er hliði í undirgöngum læst og garðurinn er þá eingöngu fyrir íbúa í húsalengjunni. Öflugt húsfélag er starfandi í húsalengjunni sem sinnir viðhaldi á húsinu vel.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Hrafnkell Pálmarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Pálsson Fasteignasala
Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
img

Hrafnkell Pálmarsson

Engjateigur 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. apr. 2018
30.550.000 kr.
14.000.000 kr.
57 m²
245.614 kr.
15. mar. 2012
14.750.000 kr.
15.700.000 kr.
57 m²
275.439 kr.
30. sep. 2010
14.800.000 kr.
14.400.000 kr.
57 m²
252.632 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Engjateigur 3, 105 Reykjavík

Hrafnkell Pálmarsson

Engjateigur 3, 105 Reykjavík