Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Eiríkur Svanur Sigfússon
Aron Freyr Eiríksson
Melkorka Guðmundsdóttir
Kristófer Fannar Guðmundsson
Svala Haraldsdóttir
Stefán Rafn Sigurmannsson
Arnór Daði Eiríksson
Vista
fjölbýlishús

Hjallabraut 4

220 Hafnarfjörður

69.500.000 kr.

710.634 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2075462

Fasteignamat

62.950.000 kr.

Brunabótamat

49.600.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1969
svg
97,8 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 30. september 2026 kl. 17:30 til 18:00

Opið hús: Hjallabraut 4, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 02 01 02. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 30. september 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

Lýsing

Einstaklega falleg, björt og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð við Hjallabraut 4 í Hafnarfirði.
Íbúðin er á 1. hæð, ekki jarðhæð með rúmgóðum svölum.

Eignin er samtals 97,8 fm, þar af er íbúðin 91,3 fm og sérgeymsla í kjallara 6,5 fm.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni undanfarin ár, bæði innan íbúðar og á vegum húsfélags.

Nánari lýsing
Forstofa:
Afar rúmgóð forstofa með nýlegum fataskáp með skúffum og hengi. Flísar eru á gólfi.
Stofa:
Björt og rúmgóð stofa með útgengi á svalir.
Baðherbergi:
Baðherbergið var endurnýjað árið 2024. Nýjar lagnir voru lagðar, flísalagt á veggi og gólf og gólfhiti lagður.
Þar er sturtubaðkar, upphengt salerni, ný innrétting og rúmgóður speglaskápur með góðu hirsluplássi.
Loftlýsing var sett meðfram gluggavegg og opnanlegur gluggi er á baðherberginu.

Þvottahús:
Þvottahúsið var endurnýjað árið 2025 og nýjar lagnir lagðar. Þar er hvít innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara,
tauskúffum undir tækjum og skápum fyrir ofan. Gólf var flísalagt og gólfhiti lagður.

Vinnuherbergi/búr:
Innaf þvottahúsi er nytsamlegt vinnu- og geymslurými. Flísar eru á gólfi og gólfhiti.

Eldhús:
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu og stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Bjartur borðkrókur er við glugga. 

Hjónaherbergi:
Rúmgott hjónaherbergi með stórum innfelldum fataskáp sem settur var upp árið 2024.
Skápurinn býður upp á mjög gott hirslupláss með skúffum, hillum og slám.

Barnaherbergi:
Bjart barnaherbergi með parketi á gólfi.

Geymsla og sameign:
6,5 fm sérgeymsla er í kjallara með hillum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er einnig í húsinu.

Gólfefni íbúðarinnar eru parket og flísar. Gólfhiti er á baðherbergi, í þvottahúsi og vinnuherbergi/búri.

Framkvæmdir í íbúð skv. seljanda
  • Nýir gólflistar  2020
  • Flísalagt í forstofu  2021
  • Baðherbergi endurnýjað og nýjar lagnir lagðar 2024
  • Nýr innfelldur fataskápur í hjónaherbergi 2024
  • Þvottahús endurnýjað og nýjar lagnir lagðar 2025
  • Gólfhiti lagður í þvottahús og vinnuherbergi/búr 2025
  • Nýjar hurðir á svefnherbergi og baðherbergi 2025
  • Ný hurð á barnaherbergi 2026
Framkvæmdir á vegum húsfélags skv. seljanda
  • Endurnýjun þakrenna og niðurfallsröra 2023–2024
  • Sprunguþéttingar og viðgerðir 2023–2024
  • Endurnýjun niðurfallsbrunns 2024
  • Viðgerð og þétting á þaki 2024
  • Endurnýjun og fóðrun lagna 2024–2025
Staðsetning

Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Stutt er í leik- og grunnskóla, matvöruverslanir og aðra helstu þjónustu.
Víðistaðatún er í næsta nágrenni og býður upp á gott útivistarsvæði.
Um er að ræða einstaklega fallega og mikið endurnýjaða eign þar sem vel hefur verið staðið að endurbótum undanfarin ár.


Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
25. feb. 2020
35.550.000 kr.
40.300.000 kr.
97.8 m²
412.065 kr.
29. sep. 2016
23.600.000 kr.
28.500.000 kr.
97.8 m²
291.411 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Ás fasteignasala

Ás fasteignasala

Fjarðargötu 17, 220 Hafnarfirði
phone