Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2005
176,3 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílastæði
Lyfta
Lýsing
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Kirkjubraut 12- 176,3 fm íbúð á 4. hæð ( efstu ) með fallegu útsýni af tvennum svölum og tvö stæði í bílakjallara.Björt, rúmgóð og ríkulega búin 176,3 fm endaíbúð á efstu hæð með tvennum svölum og tveimur stæðum í bílakjallara.
Íbúðin er í lyftuhúsi byggt árið 2005, sérlega glæsilegt útsýni af báðum svölum, svalirnar eru 6,7 fm og tilheyra hjónaherbergi, hinar svalirnar eru 28,4 fm og gengið úr stofu og borðstofu út á þær.
Innan íbúðar eru 3 svefnherbergi, Hjónasvítan er stúkuð af sér með gler rennihurð, og fylgir hjónasvítunni fataherbergi og stórt baðherbergi með baðkari og sturtu, innrétting og tvöfaldur vaskur í rúmgóðri innréttingu, veggir flísalagðir og granít á gólfi.
Sjónvarpshol inn af innri gangi. Gestasnyrting inn af holi. Forstofa með graníti á gólfi og stórum fataskáp með rennihurðum. Þvottahús með góðum innréttingum til hliðar við gesta snyrtingu. Holið er opið að hluta í stórt 57 fm alrými sem samanstendur af eldhúsi með fallegri innréttingu og eldhúseyju. Rúmgóð stofa og borðstofa.
Í sameign fylgir hjóla og vagnageymsla, sérgeymsla í kjallara og tvö stæði í bílakjallara, staðsett beint á móti hurð.
Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. jún. 2020
66.600.000 kr.
65.000.000 kr.
176.3 m²
368.690 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026