Lýsing
Miklaborg kynnir: Snyrtilega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð í tvíbýlishúsi við Lyngbrekku 8 í Kópavogi. Íbúðin er 49,7 fm og skiptist í eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sérinngangur og sérbílastæði fylgja eigninni. Eignin er í rótgrónu og vinsælu hverfi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
Nánari lýsing
Eignin er skráð sem tveggja herbergja íbúð hjá FMR en hefur verið breytt í þriggja herbergja íbúð.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting með góðu skápaplássi, eikarborðplötu og nýlegum tækjum. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.
Stofa: Björt og notaleg stofa með harðparketi á gólfi.
Auka svefnherbergi: Með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með gluggum á tvo vegu og hvítum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað og flísalagt í hólf og gólf. Þar er eikarinnrétting með skáp, upphengt salerni, walk-in-sturta og tengi fyrir þvottavél.
Geymsla: Innan íbúðar er um 3 fm geymsla.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Gólfhiti er í eigninni.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is