Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Skarðshlíð 27 íbúð 106

603 Akureyri

51.900.000 kr.

511.330 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2150345

Fasteignamat

41.900.000 kr.

Brunabótamat

46.950.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1970
svg
101,5 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is

Skarðshlíð 27-106 – vel skipulögð og töluvert endurnýjuð 4ra herbergja endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi – stærð 101,5 m²

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu innan íbúðar auk sérgeymslu í kjallara.

Nánari lýsing:
Forstofan er með ljósum flísum á gólfi, nýlegum fataskápum og fatahengi.
Eldhúsið er nýlegt með dökkum vínilflísum á gólfi, ljósri innréttingu, dökkri bekkplötu, flísum á milli skápa að hluta og borðkrók. Stæði er fyrir uppþvottavél og stóran ísskáp í innréttingu.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum suðurgluggum. Úr stofu er gengið út á rúmgóðar steyptar suður svalir.
Svefnherbergin eru þrjú, með ljósum gólfefnum og tvö þeirra með nýlegum fataskápum
Baðherbergið herfur verið endurnýjað og er það með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. Þar er walk-in sturta, vegghengt wc, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Innan íbúðar er geymsla/búr innaf forstofu með hillum. Einnig er rúmgóð sérgeymsla í kjallara, skráð 9,5 m² að stærð.

Annað:
- Íbúðin er í vesturenda hússins og hefur sérinngang af svölum
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur
- Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2021
- Góð staðsetning, stutt er í leik- og grunnskóla sem og íþróttasvæði Þórs
- Rúmgóð hjóla og vagnageymsla er í kjallara

Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. mar. 2022
28.000.000 kr.
38.900.000 kr.
101.5 m²
383.251 kr.
28. ágú. 2020
27.150.000 kr.
26.800.000 kr.
101.5 m²
264.039 kr.
4. sep. 2019
25.400.000 kr.
26.800.000 kr.
101.5 m²
264.039 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Hvammur Eignamiðlun

Hvammur Eignamiðlun

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone