Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 14

102 Reykjavík

192.500.000 kr.

809.164 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2509184

Fasteignamat

159.400.000 kr.

Brunabótamat

138.240.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2020
svg
237,9 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 237,9 fm lúxusíbúð á fjórðu hæð í vönduðu fjölbýlishúsi sem var byggt 2020. Íbúðinni fylgir í lokuðum bílakjallara 49,1 fm bílskúr með 28,4 fm geymslu inn af. Hægt er að leggja bæði fyrir framan bílskúr og inn í bílskúr. Íbúðin nær í gegnum húsið, til norðurs og suðurs og fær því glæsilegt útsýni til norðurs og mikla veðursæld til suðurs. Tvennar svalir. Íbúðin er vel búin og er með aukinni lofthæð, gólfsíðum gluggum, Miele-tæki og kvartssteini á borðum. Vandaðar innréttingar frá JKE. Ljósahönnun frá LUMEX.

Nánari lýsing: 
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskápum.
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru á hægri hönd (9 fm og 9,4 fm). Bæði með fataskápum.
Einstaklega rúmgott alrými (61,5 fm) sem rýmir borðstofu, eldhús og setustofu. Tvennar svalir, til norðurs og suðurs. Eldhúsið er við miðju á alrýminu og tengir báðar stofur skemmtilega saman. Vönduð eldhúsinnrétting frá JKE. Gott skápa- og vinnupláss. Innréttingin nær upp í loft til að hámarka geymslupláss. Kvartssteinn frá Granítsmiðjunni. Blöndunartæki frá Tengi. Ofn, helluborð og uppþvottavél frá Miele. Stór eyja með setuplássi. Glæsilegt útsýni er til norðurs, bæði úr íbúð og frá norðursvölum. Breiðar og skjólgóðar svalir til suðurs. Stofur eru sitthvorum megin við eldhús eða í norður- og suðurenda íbúðar. Báðar rúmgóðar og með aðgengi út á svalir.
Glæsileg hjónasvíta sem er mjög rúmgóð og með 8,9 fm fataherbergi og 6,1 fm baðherbergi innaf. Fataherbergið er með opnum skápum frá JKE og er lokað frá herbergi. Baðherbergið er fullbúið með innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni og „walk in“ sturtu.
Gangur liggur frá hjónaherbergi og að forstofu en inn af honum er snyrtilegt þvottahús með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski. Einnig er rúmgott baðherbergi með innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni og „walk in“ sturtu. Á stigagangi við hlið inngangs inn í íbúð eru mjög rúmgóðar suðursvalir sem eru í sameign.

Í bílakjallara er mjög rúmgóður 49,1 fm bílskúr sem fylgir eigninni. Inn af honum er 28,4 fm geymsla. Epoxy á gólfum. Stæði er fyrir framan bílskúr. Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Hægt er að leggja 1-2 bílum inn í bílskúr og einum fyrir framan hann.

Mjög fallegur inngarður er í miðju reitsins. Garðurinn er einstaklega fallegur og skjólgóður. Hann er lokaður af með húsunum, með aðgangsstýringu, sem gefa gott skjól og frið frá iðandi umferð miðbæjarins með upphituðum gönguleiðum með snjóbræðslu. Bekkir eru í garðinum og leiktæki fyrir börn.

Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968 eða unnar@eignamidlun.is.



 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. maí. 2022
91.700.000 kr.
154.990.000 kr.
259.4 m²
597.494 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík